Viðskipti innlent

Segir erfitt að kyrrsetja eignir auðmanna

Jón Daníelsson hagfræðingur
Jón Daníelsson hagfræðingur

Jón Daníelsson hagfræðingur við London School of Economics segir hugmyndir um að kyrrsetja eignir auðmanna sem Vinstri grænir hafa sett fram vera út í hött. Hann segir hugmyndina vera ill framkvæmanlega og um sé að ræða poppúlisma sem gefi fínar fyrirsagnir í blöðin.

„Í fyrsta lagi erum við að tala um eignir manna sem tengjast mörgum löndum og fyrirtækjum. Það er erfitt að átta sig á hvað þessir menn eiga af eignum hér heima og erlendis. Þetta þyrfti að gera í samráði við erlend yfirvöld og framkvæmdin myndi vera mjög erfið. Hinsvegar vitum við ekki hver það er sem er sekur af lögbrotum og það hlýtur að þurfa að fara eftir þeim lögum sem voru í gildi á þeim tíma. Að kyrrsetja eignir fólks til langs tíma er tiltölulega óréttlátt," sagði Jón í Kastljósi Sjónvarpsins í kvöld.

Jóni sagðist gruna að mikið af þessum eignum væru tengdar skuldum í gömlu bönkunum sem á endanum væru skuldir erlendra aðila. Þeir kröfuhafar myndu þá ganga fyrir og því yrði lítið eftir þegar íslenska ríkið kæmi að borðinu.

Aðspurður um hugmyndir um að koma hér á hátekjuskatti sagði Jón að alltaf væri hægt að fá einhvern pening með honum en miðað við árferðið núna væru líklega minni peninga að hafa upp úr því en margir halda.

„Hátekjuskattur er mjög vinnuletjandi og þetta er lágar upphæðir. Tjónið fyrir hagkerfið getur hinsvegar verið mikið."

Jón sagði að fyrir sér væri þetta poppúlismi sem væri illa framkvæmanlegur. „Þetta eru fínar fyrirsagnir í blöðunum en erfitt í framkvæmt."










Fleiri fréttir

Sjá meira


×