Söfnun fyrirtækja á gjaldeyri hefur veikt gengi krónunnar 10. september 2009 12:46 „
Þróun gjaldeyrisinnstæðna fyrirtækja... kann þó að vera til marks um þverrandi trú á þeim hluta áætlunar AGS og stjórnvalda sem sneri að stöðugleika, og eftir atvikum styrkingu krónunnar og hefur þá um leið spilað hlutverk í veikingu hennar." Þetta segir í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka þar sem bent er á að innstæður fyrirtækja á gjaldeyrisreikningum og í gengisbundnum veltiinnlánum hjá innlánsstofnunum jukust samanlagt um 44 milljarða kr. frá lokum mars til júníloka, reiknað á föstu gengi. Samkvæmt nýbirtum bráðabirgðatölum Seðlabankans námu innstæður á innlendum gjaldeyrisreikningum ríflega 154 milljörðum kr. í lok júlí síðastliðins. Þar af áttu heimili tæpa 35 miljarða kr. en fyrirtæki rúmlega 119 milljarða kr. Má greina af þessum tölum að fyrirtækin hafa haldið eftir hluta af sínum gjaldeyristekjum á þessum reikningum og ekki skipt þeim yfir í krónur. Skýrir það að hluta a.m.k. af hverju talsverður afgangur af vöru- og þjónustuviðskiptum við útlönd hefur ekki náð að styrkja gengi krónunnar á þessu tímabili. Svo virðist því sem fyrirtæki hafi undanfarið fært fjármuni sína í töluverðum mæli af óbundnum gjaldeyrisreikningum yfir í gengisbundin innlán sem hafa tiltekinn binditíma. Staðan á gjaldeyrisreikninum hefur minnkað nokkuð frá því hún náði hámarki í 173 milljörðum kr. í maílok. Öðru máli gegnir um gengisbundin veltiinnlán. Staða þeirra hækkaði úr rúmum 24 milljörðum kr. í maílok í 67 milljarða kr. í lok júlí. Þar sem upphæðir í tölum Seðlabankans eru í krónum litast þær af gengishreyfingum krónu frá einum tíma til annars. Ekki liggur fyrir hver myntsamsetning gjaldeyrisinnlánanna er, en gera má grófa nálgun á þróun þeirra í erlendum myntum með því að reikna tölurnar á föstu gengi miðað við gengisvísitölu í lok mánaðar. Með slíkri staðfærslu kemur í ljós að innlán fyrirtækja tengd erlendum gjaldeyri voru u.þ.b. 16 milljörðum kr. meiri í júlílok en um síðustu áramót. Breyting þeirra innan ársins er hins vegar athyglisverð, því svo virðist sem innlánin hafi minnkað um jafnvirði 28 milljarða kr. á fyrsta ársfjórðungi, en í kjölfarið aukist um 44 milljarða kr. sem fyrr segir. „Þessi þróun á sér tiltekna samsvörun í þróun gengis krónu á sama tímabili. Krónan styrktist myndarlega frá áramótum og fram í miðjan mars, en veiktist í kjölfarið nánast samfleytt fram í miðjan júní. Verulegt útflæði vaxtagjalda til útlendinga á vordögum er raunar einn veigamesti orsakavaldur veikingarkrónu á tímabilinu að mati okkar," segir í Morgunkorninu.
Mest lesið Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Atvinnulíf Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Einföld hugmynd sem er nú orðin grunnstoð í rekstri þúsunda fyrirtækja Samstarf Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira