Viðskipti innlent

Erlendum ferðamönnum fækkaði um 10% í febrúar

Samkvæmt talningum Ferðamálastofu í Leifsstöð fóru um 18 þúsund erlendir gestir frá landinu um Leifsstöð í febrúarmánuði síðastliðnum en í febrúarmánuði árið 2008 voru þeir tvö þúsund fleiri eða um 20 þúsund. Erlendum gestum fækkar því um 10% milli ára.

Fjallað er um málið á vefsíðu Ferðamálastofu. Þar segir að frá áramótum hafi því tæplega 40 þúsund erlendir gestir farið frá landinu, 6% færri en árinu áður. Meira en helmingsfækkun er í brottförum Íslendinga í febrúar en í ár fóru um 15 þúsund frá landinu en voru í sama mánuði árinu áður ríflega 32 þúsund.

Þegar litið er til einstakra markaðssvæða má sjá fækkun frá öllum mörkuðum nema N-Ameríku, en gestum þaðan fjölgar um 10%. Af Norðurlandaþjóðum fjölgar einungis Dönum.














Fleiri fréttir

Sjá meira


×