Heildarútlán ÍLS minnka um 30% milli ára 7. júlí 2009 10:18
Heildarútlán Íbúðalánasjóðs (ÍLS) fyrstu sex mánuði ársins voru um 17,4 milljarðar, en það eru um 30% minni útlán en á fyrstu sex mánuðum ársins 2008. Alls lánaði sjóðurinn um 8 milljarða króna á öðrum ársfjórðungi, sem er um 15% minna en á fyrsta fjórðungi ársins. Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu sjóðsins. Þar segir að alls námu heildarútlán ÍLS rúmlega 2,6 milljörðum króna í júní. Þar af voru rúmir 1,9 milljarðar vegna almennra lána og rúmar 700 milljónir vegna leiguíbúðalána. Heildarútlán sjóðsins jukust því um tæp 3,6 % frá fyrri mánuði. Meðalútlán almennra lána voru um 10,6 milljónir króna í júní, sem er aukning um 11% frá fyrri mánuði. Heildarvelta íbúðabréfa í júní nam tæplega 75,3 milljörðum, sem er 17% meiri velta en í fyrri mánuði. Heildarvelta bréfanna nemur 407,8 milljörðum það sem af er árinu 2009. Þann 16. júní hélt Íbúðalánasjóður fjórða útboð íbúðabréfa á árinu 2009. Alls bárust tilboð fyrir 12,195 milljarða að nafnverði. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnverði 1,925 milljarða króna í HFF34 á meðalávöxtunarkröfunni 4,13% án þóknunar og 1,575 milljarða króna í HFF44 á meðalávöxtunarkröfunni 4,13% án þóknunar. Útlánavextir sjóðsins lækkuðu um 0,1% í kjölfarið. Nýir vextir íbúðalána eru því 4,60% með uppgreiðsluákvæði og 5,10% án uppgreiðsluákvæðis. Vaxtaákvörðunin tók gildi 18. júní 2009. Heildarvelta íbúðabréfa í júní nam tæplega 75,3 milljörðum, sem er 17% meiri velta en í fyrri mánuði. Heildarvelta bréfanna nemur 407,8 milljörðum það sem af er árinu 2009.
Mest lesið Uppsagnir hjá Brimi á Vopnafirði Viðskipti innlent Forstjóri Kviku hyggst láta af störfum Viðskipti innlent Íslendingar borgi 55 prósent meira fyrir matvöru Viðskipti innlent Fjárfestu í karllægum félögum og báðu síðan um fund með forstjóranum Atvinnulíf Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Viðskipti innlent Ráðinn staðarverkfræðingur Nýs Landspítala á Akureyri Viðskipti innlent Hopp tekur rafræn ökuskírteini í notkun í appinu Viðskipti innlent Regluleg viðskipti hjá Orkunni skila viðskiptavinum raunverulegum ávinningi Samstarf Elkjøp fær milljónasekt fyrir persónuverndalagabrot Viðskipti erlent Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Viðskipti innlent Fleiri fréttir Forstjóri Kviku hyggst láta af störfum Ráðinn staðarverkfræðingur Nýs Landspítala á Akureyri Uppsagnir hjá Brimi á Vopnafirði Íslendingar borgi 55 prósent meira fyrir matvöru Hopp tekur rafræn ökuskírteini í notkun í appinu Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Bætast í hóp samstarfsfélaga Icelandair Flugmenn og Icelandair funda á morgun Sagan full af dæmum þar sem mikilvæg félög hverfa Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Icelandair tekur litáíska vél á leigu Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Sjá meira