Sparisjóður Mýrarsýslu tapaði 21 milljarði í fyrra 6. maí 2009 08:54
Tap varð af rekstri Sparisjóðs Mýrarsýslu á árinu 2008 að fjárhæð 21.2 milljarðar kr. samkvæmt rekstrarreikningi. Eigið fé í árslok var neikvætt um 15.1 milljarða kr. Þetta kemur fram í tilkynningu um uppgjör sparisjóðsins fyrir árið 2008. Eiginfjárhlutfall sem reiknað er samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki var neikvætt um 32,1% hjá samstæðunni. Samkvæmt lögunum má hlutfallið ekki vera lægra en 8,0% og því uppfyllir sparisjóðurinn ekki skilyrði laga. Viðræður við lánardrottna sparisjóðsins hafa staðið yfir frá því á miðju ári 2008 í því skyni að framkvæma fjárhagslega endurskipulagningu á sjóðnum og tryggja að hann uppfylli skilyrði laga. Þann 3. apríl 2009 var gerður samningur um sölu allra eigna Sparisjóðs Mýrasýslu til Nýja Kaupþings banka hf. á grundvelli samkomulags við helstu lánardrottna. Þann 27. apríl sl. voru útibú sparisjóðsins og Nýja Kaupþings banka í Borgarnesi sameinuð og starfsmenn sparisjóðsins færðust yfir til Nýja Kaupþings banka. Í kjölfarið sótti sparisjóðurinn um greiðslustöðvun og gert er ráð fyrir að ljúka samningum við lánadrottna með nauðasamningum í því skyni að tryggja jafnræði kröfuhafa. Stjórn sparisjóðsins leggur til að ekki verði greiddur arður til stofnfjáreigenda á árinu 2009 vegna ársins 2008. Um jöfnun taps og aðrar breytingar á eiginfjárreikningum er vísað til ársreikningsins. Í árslok var stofnfé sparisjóðsins 505 millj. kr. Stofnfé sparisjóðsins er allt í eigu Borgarbyggðar eins og í ársbyrjun en þann 4. apríl 2009 var allt stofnfé sparisjóðsins selt til Nýja Kaupþings banka.
Mest lesið Að fólk skilji garðhúsgagnabúslóðirnar eftir heima Neytendur Nýtt endurskoðunar- og ráðgjafarfyrirtæki undir merkjum LOGOS Viðskipti innlent Milla ætlar í formanninn Viðskipti innlent ESB gæti markað endalok umdeildra skilmála Icelandair Viðskipti innlent Sumarfrísdagur númer átta mesta sælan Atvinnulíf Klára námslánið eða greiða inn á húsnæðislánið? Viðskipti innlent Villi Birgis grætur Krambúðina á Akranesi Viðskipti innlent Bláa lónið festir kaup á Arctic Adventures og stefnir á markað Viðskipti innlent LánHeimur ekki undir eftirliti fjármálaeftirlits Viðskipti innlent Byrjaði sem fulltrúi í söludeild dótturfyrirtækis og er nú framkvæmdastjóri hjá Eimskip Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýtt endurskoðunar- og ráðgjafarfyrirtæki undir merkjum LOGOS Villi Birgis grætur Krambúðina á Akranesi Bláa lónið festir kaup á Arctic Adventures og stefnir á markað LánHeimur ekki undir eftirliti fjármálaeftirlits ESB gæti markað endalok umdeildra skilmála Icelandair Byrjaði sem fulltrúi í söludeild dótturfyrirtækis og er nú framkvæmdastjóri hjá Eimskip Klára námslánið eða greiða inn á húsnæðislánið? Milla ætlar í formanninn Efna til útboðs hlutabréfa að virði 125 milljóna dala Tilboð Reita í uppbyggingu hjúkrunarheimilis valið Ekki sést til lands í deilunni sem hefur haft áhrif á yfir sjö þúsund farþega Sigurjón nýr framkvæmdastjóri Mediacom Ógnarlöng stefna Samkeppniseftirlitsins kemst að eftir allt saman Hakkarar geti lesið gögn af læstri tölvu á tíu mínútum án lykilorðs Sýndareftirlit ef fylgjast eigi með skemmtistöðum á skrifstofutíma Tillögur ráðherra sagðar rýra virði bankanna um tugi milljarða Fjármálaráðherra veldur fyrrverandi varaformanni Viðreisnar vonbrigðum Höskuldur nýr framkvæmdastjóri afþreyingar- og ævintýrasviðs Enn fjölgar aflýsingum Ferðaþjónusturisar hætta við samruna Deilan harðnar á ný: Fleiri aflýsingar hjá Icelandair Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Ísland sjaldnast uppfyllt upptökuskilyrði fyrir evru Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Björgvin kjörinn nýr formaður FHG Festa og Gildi vilja sameinast Halli ríkissjóðs eykst um tugi milljarða milli ára Kanna hvort pottur hafi verið brotinn hjá Oculis Matvælaverð hafi hækkað minna en laun frá 2020 Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Sjá meira
Byrjaði sem fulltrúi í söludeild dótturfyrirtækis og er nú framkvæmdastjóri hjá Eimskip Viðskipti innlent
Byrjaði sem fulltrúi í söludeild dótturfyrirtækis og er nú framkvæmdastjóri hjá Eimskip Viðskipti innlent