Útlán til atvinnuveganna námu 5.500 milljörðum kr. 14. janúar 2009 11:54
Útlán lánakerfisins til atvinnuveganna námu 5.518 milljörðum kr. í lok september síðastliðnum eða rétt fyrir hrun bankanna. Þetta er um fjórföld áætluð landsframleiðsla síðasta árs. Greining Glitnis fjallar um málið í Morgunkorni sínu. Þar segir að skuldir fyrirtækjanna höfðu þá aukist um 44% frá upphafi árs og mun meira en skuldir heimilanna en þær skuldir jukust um 22% á sama tíma. Hröð skuldaaukning atvinnuveganna er ekkert ný á nálinni en í upphafi síðasta árs höfðu skuldir þeirra þrefaldast á fjórum árum. Þessi þróun tengdist skuldsettum kaupum hlutafjár í erlendum fyrirtækjum og beinum yfirtökum erlendra fyrirtækja. Að baki þeim kaupum stóðu oft á tíðum eignarhaldsfélög en um 39% af útlánum bankakerfisins til fyrirtækja í lok september voru til eignarhaldsfélaga. Skuldir eignarhaldsfélaga höfðu þá aukist um 71% á árinu. Af útlánum lánakerfisins til innlendra aðila í lok september voru 72% til atvinnuveganna og 25% til heimilanna. Kemur þetta fram í hagtölum Seðlabankans. Meirihluti skulda fyrirtækja fyrir hrunið voru gengisbundnar og hafði vægi þeirra þá verið að aukast. Af skuldum fyrirtækja við innlánsstofnanir í lok september síðastliðnum voru gengisbundnar skuldir tæplega 68% samanborið við 59% í upphafi árs 2008. Hátt hlutfall erlendra skulda skýrist af erlendri fjárfestingu sem var fjármögnuð með erlendum lánum á undanförnum árum. Einnig setti óhagstæð gengisþróun krónunnar sitt strik í reikninginn á síðastliðnu ári en gengisvísitala krónunnar og þar með meðalverð gjaldmiðla helstu viðskiptalandanna hækkaði um 59% á fyrstu níu mánuðum ársins.
Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Sjá meira