Viðskipti innlent

Vextir af krónubréfum 14 milljarðar kr. til loka febrúar

Vextir af krónubréfum sem eru á gjalddaga fram til loka febrúar munu nema um 14 milljörðum kr.. Þetta kemur fram í veffréttabréfi Landsbankans í dag.

Eins og kunnugt er af fréttum eru krónubréf að upphæð 98 milljarða kr. á gjalddaga í þessum mánuði og í febrúar. Í fréttabréfinu kemur fram að reikna megi með að nær öllum vöxtunum verði breytt í gjaldeyri og hann fluttur úr landi en slíkt má samkvæmt gjaldeyrisreglum Seðlabankans.

Sjálfum höfuðstólnum verður hinsvegar að öllum líkindum breytt í stutt ríkisbréf enda óheimilt að flytja hann úr landi sem gjaldeyri.

Ennfremur er talið líklegt að Seðlabankinn muni nota gjaldeyrisforða sinn til að greiða út vextina því annars er hætta á frekari veikingu krónunnar, einkum í kringum gjalddagann í lok janúar sem er upp á 40 milljarða kr..








Fleiri fréttir

Sjá meira


×