Viðskipti innlent

Skattbyrði hjá flestum lækkar á þessu ári

„Niðurstaðan er sú að skattbyrði meginþorra einstaklinga muni minnka á árinu og því má segja að um almenna skattalækkun sé að ræða en ekki skattahækkun," segir Arnald Sölva Kristjánsson hagfræðingur í grein í Vísbendingu um áhrif skattabreytinganna um áramótin.

Breytingarnar um áramótin fólu í sér að álagningarhlutfall staðgreiðslu tekjuskatts hækkaði um 1,5% stig, aftur á móti hækkaði persónuafslátturinn um 24% vegna ákvarðana sem áður höfðu verið teknar.

Arnaldur segir að einstaklingar með tekjur á bilinu 100 til 574 þús. kr. á mánuði munu á þessu ári greiða lægra hlutfall tekna sinna í tekjuskatt. Lækkunin er mest hjá fólki með 120 þús. kr. í tekjur eða um 5,5%. Minnkun á skattbyrði fjarar síðan út eftir því sem tekjur eru hærri.

Til þess að skattbyrði aukist þurfa tekjur að vera hærri en 574 þús. kr. á mánuð. Aukningin er þó ekki mikil. Skattbyrði einstaklinga með 1,5 millj. kr. í mánaðartekjur eykst um 0,9% eða sem nemur um 13 þús. kr. í aukinni skattgreiðslu á mánuð.

Meginþorri einstaklinga eru hins vegar með tekjur undir 574 þús. kr. Meðaltekjur eru á bilinu 300-400 þús. kr. Á árinu 2007 voru færri en 10% framteljenda með tekjur yfir 574 þús. kr. á mánuð. Af þessu má sjá að meginþorri einstaklinga mun á þessu ári greiða lægri skatt.

"Það er því óhætt að fullyrða að breytingarnar um áramótin hafi í för með sér almenna skattalækkun," segir Arnaldur.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×