Veik staða krónunnar heldur stýrivöxtum háum 8. janúar 2009 12:23
Meginástæða hárra stýrivaxta hér á landi er veik staða krónunnar og hin brýna þörf á að forða henni frá frekara hruni. Greining Glitnis fjallar um málið í Morgunkorni sínu en athygli hefur vakið að meðan allar þjóðir í kringum okkur eru að lækka stýrivexti sína haldast þeir áfram háir á Íslandi. Hagkerfið sjálft er að skreppa saman sem aldrei fyrr og verðbólgan framundan er lítil sem enginn ef krónan helst stöðug. Háir stýrivextir og gjaldeyrishöft eru því sá kostnaður sem þarf að greiða til að skapa gjaldmiðlinum eitthvað verðgildi og þó að undan þeim svíði sérstaklega, núna þegar enga erlenda fjármögnun er að fá, eru háir stýrivextir betri fyrir fyrirtæki og heimili í landinu en frekara fall krónunnar. Staðan sýnir vel þann galla sem felst í núverandi fyrirkomulagi gengis- og peningamála hér á landi í glímunni við þau efnahagsvandræði sem við blasa. Hvenær farið verður í stýrivaxtalækkun hér á landi fer að mati greiningarinar nær alfarið eftir því hvernig gengur að ná stöðugleika á gjaldeyrismarkaði og að fleyta krónunni á ný. Gangi það eftir sem stjórnvöld í samvinnu við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn stefna að í þeim efnum er líklegt að fyrsta stýrivaxtalækkun ársins komi á vaxtaákvörðunardegi bankans 19. mars næstkomandi. Náist þessi markmið í gengismálum mun verðbólgan hjaðna hratt á næstunni enda ekkert sem heldur henni uppi. Slaki hefur leyst af hólmi þenslu á vinnumarkaði á skömmum tíma og ef kjarasamningsbundnar hækkanir verða innan marka stöðugleika, líkt og líkur eru á, mun ekki koma mikill þrýstingar á verðlag frá þessari átt. Húsnæðisverð er einnig að lækka og mun það draga úr verðbólgunni. Þá er hrávöruverð á niðurleið sem og annar erlendur verðbólguþrýstingur. Greining Glitnis reiknar með því að Seðlabankinn verði kominn með stýrivexti sína niður í 7% í lok árs.
Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Sjá meira