Peningastefnunefnd samhljóma um síðustu vaxtaákvörðun 17. júlí 2009 08:28
Peningastefnunefnd var samhljóma um síðustu vaxtaákvörðun sína að því er segir í fundargerð nefndarinnar um síðustu stýrivaxtaákvörðun hennar frá í byrjun mánaðarins. „Sumir nefndarmenn töldu að þörf væri á nokkru peningalegu aðhaldi til að viðhalda verðgildi krónunnar. Þeir höfðu áhyggjur af því að aukin verðbólga kynni að grafa undan tiltrú manna á peningastefnunni og krónunni," segir í fundargerðinni sem birt hefur verið á vefsíðu Seðlabankans. „Stýrivextir mættu því ekki lækka of mikið á meðan hjöðnun verðbólgu stæði, svo tiltrú manna á gjaldmiðlinum myndi ekki skaðast frekar. Nefndarmenn ræddu hvort halda bæri stýrivöxtum óbreyttum, sem og hvort hækka ætti þá lítilsháttar. Einnig var rætt um að hækka innlánsvexti eingöngu. Með hliðsjón af umræðunni lagði seðlabankastjóri til að stýrivextir og innlánsvextir yrðu óbreyttir. Sú tillaga var samþykkt samhljóða." Ennfremur kemur fram í fundargerðinni að nefndin ræddi einnig nýlega þróun á innlendum fjármálamarkaði. Meðal þess sem fjallað var um var ofgnótt lausafjár á krónumarkaði, skilvirkni gjaldeyrishaftanna, viðskipti á innlendum gjaldeyrismarkaði og aflandsmarkaði, halli ávöxtunarferilsins og gjalddagar og útgáfa ríkisverðbréfa. Sumir nefndarmenn lýstu yfir áhyggjum af of miklu lausafé á krónumarkaði og lögðu áherslu á nauðsyn þess að bæta lausafjárstýringu Seðlabankans. Of mikið lausafé gæti hafa átt þátt í veikingu krónunnar og því væri mikilvægt að draga umfram lausafé af markaðnum. Allir nefndarmenn lýstu yfir áhyggjum af nýlegri gengislækkun krónunnar. Sumir þeirra töldu að það að farið hafi verið í kringum gjaldeyrishöftin gæti hafa vegið á móti afgangi á vöruskiptajöfnuði. Það, ásamt versnandi viðskiptakjörum og stórum vaxtagreiðslum í júní, hafi stuðlað að veikingu krónunnar. Sumir nefndarmenn töldu að fyrri lækkanir stýrivaxta ætti óverulegan þátt í nýlegri gengislækkun krónunnar. Aðrir héldu því þó fram að ekki væri útilokað að umtalsverð lækkun stýrivaxta og sérstaklega stýrivaxtaákvörðunin í maí hefði haft einhver áhrif. Því álitu nefndarmenn að ekki væri ráðlegt að slaka frekar á aðhaldi í peningamálum að svo stöddu, eða þar til krónan hefði styrkst verulega að nýju miðað við núverandi stöðu hennar. Jafnvel væri nauðsynlegt að hækka stýrivexti ef krónan styrktist ekki á næstunni. Þar sem þróunin í þjóðarbúskapnum hefur í grófum dráttum verið í samræmi við væntingar voru nefndarmenn sammála um að takmarkaður verðbólguþrýstingur væri til staðar og að verðbólgan myndi halda áfram að nálgast verðbólgumarkmiðið þegar gengi krónunnar næði jafnvægi.
Mest lesið Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Viðskipti innlent Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Viðskipti innlent Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Viðskipti innlent Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Viðskipti innlent Stundum þarf einfaldlega að segja: „Afsakaðu þetta“ Atvinnulíf Spá aukinni verðbólgu í apríl Viðskipti innlent Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Viðskipti innlent Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Sjá meira