Eimskip semur um frestun vaxtagreiðslna 3. mars 2009 09:15
Eimskipafélagið hefur samið við skuldabréfaeigendur í tveimur flokkunum, útgefin að verðmæti 10 milljarða kr., um frestun vaxtagreiðslna. Þá mun sala á eignum í Norður-Ameríku liggja fyrir innan nokkurra vika. Í tilkynningu um málið segir að Eimskip hafi þegar fengið undirritað samþykki um 75% skuldabréfaeigenda þessara flokka og áfram er unnið að því að ná sama samkomulagi við þann hluta eigenda skuldabréfa sem ekki hafa gengið frá samningi við félagið. Eimskip hefur undanfarna mánuði unnið að fjárhagslegri endurskipulagningu með innlendum og erlendum ráðgjöfum eins og áður hefur komið fram. Stór þáttur í þeirri endurskipulagningu er sala á eignum félagsins í Norður-Ameríku. Stefnt er að því að söluferlinu ljúki innan nokkurra vikna, en nú er unnið að því að meta þau tilboð sem komið hafa og ganga til frekari viðræðna við tilboðsgjafa. Enn er óljóst hvert endanlegt söluverðmætið verður og því er enn óljóst hver áhrifin á sölunni verða endanlega. Eimskip hefur þegar náð samkomulagi við mikinn meirihluta skuldabréfaeigenda allra flokka útgefnum af félaginu um frestun vaxtagreiðslna og afborgana. Félagið er jafnframt í viðræðum við aðra lánveitendur og hafa viðbrögð lánveitenda almennt verið jákvæð. Þegar niðurstaða í söluferlinu á eignum í Norður-Ameríku liggur fyrir verður farið í frekari viðræður við helstu lánveitendur um fjárhagslega endurskipulagningu sem snúa að því styrkja eiginfjárstöðu félagsins og tryggja framtíðarrekstur þess sem skipafélags. Þrátt fyrir erfiða skuldastöðu félagsins og óhagstæð skilyrði á fjármálamarkaði er grunnrekstur félagsins í vel viðunandi horfi og ágætlega hefur gengið að aðlaga rekstur félagsins að þeim samdrætti sem hefur verið í flutningum til landsins.
Mest lesið Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Sjá meira