Aldrei hafa fleiri fengið íslenskt ríkisfang og í fyrra 17. febrúar 2009 09:21
Aldrei hafa eins margir landsmenn fengið íslenskt ríkisfang samkvæmt íbúaskrá Þjóðskrár og árið 2008, eða 914. Frá árinu 1999 hefur verið stöðug fjölgun á veitingu íslensks ríkisfangs að undanskildu árinu 2007 en þá var fækkun um 197 frá fyrra ári. Fleiri konur en karlar fengu íslenskt ríkisfang árið 2008, eða 525 konur á móti 389 körlum. Greint er frá þessu á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að flestir einstaklingar sem hlutu íslenskt ríkisfang árið 2008 höfðu áður pólskt ríkisfang (164), næst fjölmennastir eru þeir sem höfðu filippseyskt ríkisfang (126) , þar næst eru þeir sem höfðu serbneskt ríkisfang (106) og loks þeir sem höfðu haft taílenskt ríkisfang (62). Þetta eru sömu hópar og hafa verið fjölmennastir hin síðustu ár, að Serbum undanskildum, en fram undir júní 2006 töldust þeir til Serbíu og Svartfjallalands. Fæðingarland þeirra einstaklinga sem fá íslenskt ríkisfang gefur svolítið aðra mynd. Árið 2008 var Ísland algengasta fæðingarlandið, en 140 einstaklingar af þeim 914 sem fengu íslenskt ríkisfang voru fæddir hér á landi. Í Póllandi fæddust 134 og 124 í einhverjum af ríkjum fyrrum Júgóslavíu. Þetta er í fyrsta sinn frá 2003 sem Ísland er algengasta fæðingalandið, en frá 2004 hafa þeir sem fæddir eru í Póllandi vermt efsta sætið. Frá 1991 til 2003 var Ísland algengasta fæðingarlandið nema árið 1996, en þá var stærsti hópurinn fæddur í Víetnam.
Mest lesið „Ég verð að segja að ég er svolítið hlessa“ Neytendur Verðbólga eykst verulega Viðskipti innlent Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Viðskipti innlent Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Viðskipti innlent Frosti og Arnþrúður fá styrki Viðskipti innlent Landsbankinn sýknaður af öllum kröfum í Vaxtamálunum Neytendur Kvartanir berast í hverri viku vegna gjafabréfa Neytendur Hvetja neytendur til að vera á varðbergi eftir áramót Neytendur Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Viðskipti innlent Skellir í vél á morgnana og nokkuð ánægð með sjálfa sig í gjafavali Atvinnulíf Fleiri fréttir Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Edda Rós til Hagstofunnar Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ Sjá meira