Viðskipti innlent

Ísland gjaldþrota verði einhliða upptaka evru reynd

Halla Tómasdóttir, stjórnarformaður Auðar Capital.
Halla Tómasdóttir, stjórnarformaður Auðar Capital.

Halla Tómasdóttir, stjórnarformaður fjárfestingafélagsins Auðar Capital, segir að gjaldþrot íslensku þjóðarinnar sé næsta víst, verði reynt að taka einhliða upp evru. Hún segir að með því að viðra slíkar hugmyndir sé verið að reyna að drepa umræðunni á dreif. Halla ítrekaði í Markaðnum á Stöð 2 í kvöld að hún vildi að Ísland gengi í ESB.

Halla sagði að fjárfestingasjóðurinn BJÖRK sem Auður Capital setti á fót fyrir áramót ásamt Björk Guðmundsdóttur söngkonu hefði fengið mjög jákvæðar viðtökur erlendis. Sjóðurinn hefði fengið kynningu í fjölmörgum erlendum fjölmiðlum. Augljóst væri að alþjóðlegir fagfjárfestar vildu fjárfesta á Íslandi þrátt fyrir að álit Íslendinga hefði beðið hnekki.

Halla sagði að það væri tímabært að Íslendingar hættu að vorkenna sjálfum sér. Þeir þyrftu að huga að því hvernig til stæði að byggja upp Ísland eftir bankahrunið.
















Fleiri fréttir

Sjá meira


×