Viðskipti innlent

Yfirtaka ríkisins á Glitni gat aldrei verið trúverðug

Sigurður Einarsson
Sigurður Einarsson

Sigurður Einarsson fyrrum stjórnarformaður Kaupþings segir að margt af því sem sagt hafi verið um sig í fjölmiðlum undanfarið sé ósatt og annað slitið úr samhengi. Sigurður segist fyrst og síðast hafa unnið að hag Kaupþings og hafi farið að lögum og reglum í því sambandi. Þetta kemur fram í bréfi sem Sigurður sendi vinum og vandamönnum í gær.

Bréfið sem er nokkuð ítarlegt er birt á mbl.is í kvöld en þar segir Sigurður meðal annars að neyðarlögin svokölluðu sem sett voru eftir fall bankanna hafi sennilega verið verstu mistökin sem voru gerð.

Hann segist lengi hafa verið í hópi þeirra sem ákaft hafa talað fyrir því að gjaldeyrisvarasjóður landsins yrði margfaldaður en því hafi í engu verið sinnt og seðlabanki landsins hafi því haldið áfram að vera algerlega vanmáttugur til þess að fást við það verkefni sitt að vera banki bankanna. „...þrátt fyrir að marg yfirlýst stefna stjórnvalda væri á þessum tíma að hér risi fjármálamiðstöð."

Sigurður segir þetta einnig sárgrætilegt í ljósi þess að Seðlabanki Íslands gerði allt sem í hans valdi stóð til að koma í veg fyrir að bankarnir verðu sig gegn eða færðu sig af áhrifasvæði íslensku krónunnar. „Seðlabankinn þvingaði því íslenska banka til að þiggja af sér þjónustu sem hann sinnti í engu að veita."

Hann segir einnig að sú aðferð sem notuð var við þjóðnýtingu Glitnis verði skráð í sögubækurnar sem mikið axarskaft. „Eftir á að hyggja er erfitt að segja hvort hægt hefði verið að bjarga Glitni eða ekki, ég hef ekki nægar upplýsingar til að meta það, en að ríkið tæki yfir bankann gat aldrei verið trúverðugt. Það má líka furðu sæta að ríkið treysti sér fremur til að kaupa hlutafé í bankanum fremur en að veita honum lán gegn veðum. Lán er alltaf tryggari krafa en hlutafé."










Fleiri fréttir

Sjá meira


×