Guðjón Valur: Þýðir ekkert annað en að vinna Makedóníu Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 14. júní 2009 20:00 Guðjón Valur. Mynd/Arnþór
Guðjón Valur Sigurðsson var upplitsdjarfur eftir jafnteflið við Norðmenn og er strax kominn með hugann við stórleikinn á 17. júní. "Þetta er það sem við fengum út úr þessu í dag.Ég er virkilega ánægður með viljann, baráttuna og samstöðuna í liðinu en auðvitað vildum við fá bæði stigin en það þýðir þá ekkert annað en að vinna Makedóníu á miðvikudaginn," sagði Guðjón Valur eftir leikinn. "Við töpum og vinnum saman. Það er ekki hægt að hengja þetta á einn frekar en annan. Þetta er hópíþrótt og við vinnum saman og töpum saman. Við erum lið og vinnum saman og töpum saman. Það er ákvörðun þjálfarans hver spilar. Mér er alveg saman hver er góður og hver er lélegur svo framarlega sem við vinnum." "Varnarleikurinn var mjög góður fyrsta korterið en eftir það fannst mér hann detta niður. Við erum að etja við rosalegan línummann sem virðist fá að leika sér aðeins meira en okkar línumenn allavega." Ísland er þremur stigum á undan Makedóníu fyrir leik liðanna á miðvikudaginn sem veitir ákveðið svigrúm fyrir þann leik en þannig vill Guðjón Valur ekki nálgast leikinn. "Við ákváðum fyrir leikina að spá sem minnst í stöðuna í riðlinum. Þetta er klisja en við hugsum bara um næsta leik og við ætlum að vinna hann. Við förum ekki inn í leikinn gegn Makedóníu með þá hugsun að jafntefli dugir. Þessi leikur er á 17. júní og þetta eru skemmtilegustu leikirnir fyrir okkur alla síðustu árin. Ég vona að fólk fjölmenni og fylli Höllina. Það kemur ekkert annað til greina að vinna leikinn. við komum til með að taka á því að berjast til síðasta manns líkt og í dag og náum vonandi í bæði stigin," sagði Guðjón Valur að lokum.
Íslenski handboltinn Mest lesið Svakaleg slagsmál í æfingarleik á Spáni Fótbolti Dagný kveður West Ham með tárin í augunum Enski boltinn „Ekki sáttir við að Íslendingur kæmi að kenna þeim“ Fótbolti Stúkan: Getur KR fallið úr deildinni? Íslenski boltinn Framari týndi boltanum í miðjum leik og Rikki G var alveg gáttaður Íslenski boltinn Blikarnir hoppuðu út í á Fótbolti Reyndu að ráða Solskjær áður en þeir réðu svo Heimi Hallgríms Fótbolti Trump réði sjálfan sig í stórt starf á Ólympíuleikunum Sport Markvörður íslenska liðsins með fimm mörk Handbolti Sjáðu Hákon leggja upp mark fyrir Giroud Fótbolti Fleiri fréttir Leðurblökur að trufla handboltafélag Markvörður íslenska liðsins með fimm mörk Íslensku strákarnir byrjuðu HM á 22 marka sigri Þýsku meistararnir urðu að segja upp öllum leikmönnunum sínum Blær og félagar „niðurlægðir“ á undirbúningstímabilinu „Mikilvægt að fá nýjan og ferskan Blæ inn í þetta“ Guðjón Valur orðaður við Kiel Holland fór illa með stelpurnar okkar í seinni hálfleik Íslensk landsliðskona skrifar um glímu sína við átröskun Stelpurnar fóru illa með færeyrsku frænkur sínar Sú markahæsta sett í bann því liðsfélagarnir neita að æfa með henni Ekkert spilað í þrjú ár eftir ítrekuð læknamistök Gull og brons á Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar Annað risastórt kvennahandboltafélag gjaldþrota Strákarnir brunuðu í úrslitaleikinn Tjörvi Týr færir sig um set í Þýskalandi Ákvað að fara þegar faðir hans var rekinn Stelpurnar tryggðu sér fimmtánda sætið Stelpurnar réðu ekki við þær serbnesku Erlangen staðfestir komu Andra Grétar kveður Frakkland og fer til Grikklands Aron Pálmars fær kveðjuleik í Kaplakrika og Veszprém mætir Ásthildur skoraði átján mörk í stórsigri íslensku stelpnanna „Margt dýrmætt á þessum ferli“ Valskonur þurfa að vinna hollensku meistarana til að fá Íslendingaslag Elín Jóna ólétt og verður ekki með á HM Giorgi Dikhaminjia aftur til Íslands Þorsteinn Gauti semur við Sandefjord Hneykslast á kostnaði við kveðjuveislu Þóris og Lio Skoraði yfir sex hundruð mörk á tímabilinu Sjá meira