FT bjartsýnt fyrir Íslands hönd 3. febrúar 2009 23:57 Leiðarahöfundur segir Jóhönnu Sigurðardóttur eiga erfitt verk fyrir höndum.
Bjartsýni gætir fyrir Íslands hönd í leiðara breska blaðsins Financial Times í dag. Þar er talið að framtíð Íslendinga liggi í Evrópusambandinu eða í myntsamstarfi við einhverja af hinum norrænu þjóðunum. Leiðarahöfundur FT hefur pistil sinn, sem hann nefnir Ísland lofað, á því að þrátt fyrir að febrúar sé genginn í garð sé langt í að vetrinum ljúki hér á landi. Hins vegar blasi ekki algjört svartnætti við þjóðinni þar sem undirstöðurnar í efnhagslífinu séu sterkar. Reyndar megi öfunda Íslendinga af afrekum sínum þrátt fyrir hrunið bankakerfi. Landsmenn búi meðal annars að sjávarútvegi, fyrirtæki sem selji fiskvinnsluvélar um allan heim og ódýrri orku. Þá njóti landið góðs af flugi milli Evrópu og Bandaríkjamanna í ferðaþjónustunni og státi á ýmsum afrekum á menningarsviðinu. ,,Þrátt fyrir að fjármálageirinn hafi þurrkast út er engin ástæða til að ætla annað en að aðrir geirar standi sterkir. Ísland er ekki bananalýðveldi," segir leiðarahöfundur. Hann bendir þó að stjórnvalda bíði það verkefni að skapa stöðuleika á hinu pólitíska sviði og að Jóhanna Sigurðardóttir verði að knýja í gegn umbætur, sérstaklega á sviði peningamála. Ekki gangi lengur fyrir Íslendinga að reka sjálfstæða peningamálastefnu og því liggi möguleikar Íslands í því að ganga til liðs við Evrópusambandið og taka upp evru eða kanna möguleika á myntsamstarfi við önnur norræn ríki. Á sama tíma verði að endurreisa bankakerfið og greina frá þvi hvaða skuldir ríkið muni axla. Þetta dugi ekki því marka verði stefnu í atvinnumálum svo atvinnulausir Íslendingar fái vinnu á ný. Einhver þeirra starfa verði í fjármálageiranum en Ísland hafi sem betur fer margt annað að bjóða. Pistilinn má nálgast hér.
Mest lesið Flugvirkjar fara í verkfall Viðskipti innlent Einn tíundi fékkst upp í hundruð milljóna króna gjaldþrot veitingamanns Viðskipti innlent Telur yfir milljarð á dag í húfi Viðskipti innlent Hafa samband við farþega Viðskipti innlent Hart tekist á um fjárlögin: „Hvað er að þessu liði?“ Viðskipti innlent Atlantic Airways gefur eftir í samkeppni við Icelandair Viðskipti innlent Erlendis fjölgar draugastörfum: Auglýsa störf sem ekki eru til Atvinnulíf Enn hnútur hjá flugmönnum Icelandair Viðskipti innlent Ákall gervigreindarrisa: Eina sem gervigreindin þurfi sé „sterkur og snjall forseti“ Viðskipti erlent Gengið aldrei verið lægra Viðskipti innlent Fleiri fréttir Enn hnútur hjá flugmönnum Icelandair Telur yfir milljarð á dag í húfi Einn tíundi fékkst upp í hundruð milljóna króna gjaldþrot veitingamanns Gengið aldrei verið lægra Hafa samband við farþega Flugvirkjar fara í verkfall Hart tekist á um fjárlögin: „Hvað er að þessu liði?“ Rjúfa þurfi vítahringinn með breyttu vinnumarkaðslíkani Spurðu hvað fyrirtæki ætluðu að gera og hafa þegar fengið svar Ráðinn fjármálastjóri Háskólans á Bifröst Bein útsending: Hærri skattar, töpuð tækifæri? Atlantic Airways gefur eftir í samkeppni við Icelandair Jón Birgir ráðinn forstjóri Kviku Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Vara við afleiðingunum NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Hermann framkvæmdastjóri Fálkans Ísmars Telur Þórð hafa misskilið en sama tala varð niðurstaðan Fjórar af hverjum fimm íbúðum seljast undir auglýstu verði: „Við höfum miklar áhyggjur“ Bundu nær allan koltvísýring og brennistein á Hellisheiði Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Íslandshótelum Ráðin markaðsstjóri Prís Saka Símann um undirboð með áskriftarpakka Opna nýtt kaffihús í Listasafni Reykjavíkur Svona er umhorfs í endurbættri fríhöfn Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar 65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Sjá meira
Ákall gervigreindarrisa: Eina sem gervigreindin þurfi sé „sterkur og snjall forseti“ Viðskipti erlent
Ákall gervigreindarrisa: Eina sem gervigreindin þurfi sé „sterkur og snjall forseti“ Viðskipti erlent