Mjög mikill samdráttur í greiðslukortaveltu Íslendinga 14. janúar 2009 12:02
Mjög mikill samdráttur hefur orðið í greiðslukortaveltu Íslendinga, einkum erlendis þar sem veltan hefur dregist saman um tvo þriðju í desembermánuði miðað við sama tíma í fyrra. Fjallað er um máið í Morgunkorni grieningar Glitnis. Þar segir að mikill samdráttur í kortaveltu undanfarið er til marks um hversu hratt heimilin hafa hert beltið eftir að fjármálakreppan brast á síðasta haust. Tölur um veltu í smásöluverslun segja svipaða sögu. Samkvæmt nýbirtum tölum Seðlabankans var heildarvelta vegna kreditkortanotkunar 20,4 milljarða kr. í desembermánuði. Reiknað á föstu gengi og verðlagi er hér um 27% samdrátt á milli ára að ræða, og athygli vekur að þegar leiðrétt er fyrir gengisbreytingum hefur erlend kreditkortavelta skroppið saman um tvo þriðju á milli ára. Debetkortavelta minnkaði einnig verulega í desember frá sama tíma í fyrra, og nam raunbreytingin 18% í heild en 15,5% ef aðeins er litið til veltu í verslunum. Rétt er að hafa í huga að kreditkortaveltan miðast við kortatímabil en debetkortaveltan við almanaksmánuðinn. Kortavelta gefur góða mynd af þróun einkaneyslu, og miðað við breytingar á kortaveltu undanfarna mánuði má vera ljóst að einkaneysla hefur skroppið mikið saman frá því kreppan skall á af fullum þunga. Einfalt líkan, þar sem breytingar á kreditkortaveltu auk debetkortaveltu í innlendum verslunum eru notaðar til að spá fyrir um þróun einkaneyslu, gefur þá niðurstöðu að einkaneyslan hafi minnkað um u.þ.b. fimmtung á síðasta fjórðungi nýliðins árs miðað við sama tíma árið 2007.Svo snarpur hefur samdráttur einkaneyslu aldrei orðið síðan Hagstofan hóf að birta ársfjórðungslega þjóðhagsreikninga fyrir áratug síðan.
Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Sjá meira