Verulegur afgangur af vöruskiptum í desember 8. janúar 2009 13:11
Samkvæmt bráðabirgðatölum fjármálaráðuneytisins var verðmæti innfluttrar vöru í desember 32,5 milljörðum kr. sem er nokkuð minni innflutningur en í nóvember þegar hann nam 40,6 milljarða kr. Fyrstu vísbendingar eru um að útflutningur vöru hafi aukist töluvert í desember en hann nam 43,2 miljarða kr. í nóvember. Þetta kemur fram í vefriti fjármálaráðuneytisins. Þar er vakin athygli á því að vegna tæknilegra vandamála hefur Hagstofa Íslands enn ekki birt bráðabirgðaniðurstöður sínar fyrir desember og verða þær birtar á vef stofnunarinnar næstkomandi miðvikudag. Er því ekki tímabært að birta nákvæmar upplýsingar varðandi útflutning eða vöruskiptin í heild í desember en líklega er um verulega aukinn afgang að ræða. Hvað undirliði innflutningsins varðar er mestur samdrátturinn í innflutningi á eldsneyti og smurolíum en þessi liður er jafnan mjög sveiflukenndur á milli mánaða. Einnig er nokkur samdráttur á innflutningi á hrá- og rekstrarvörum og skýrist sá samdráttur af minni innflutningi á áloxíði en sá innflutningur var mjög mikill í nóvember. Aðrir undirliðir innflutningsins í desember eru að mestu óbreyttir miðað við undanfarna mánuði. Varðandi fyrirliggjandi vísbendingar um útflutning í desember er búist við auknum útflutningi á bæði áli og sjávarafurðum. Ekki er ólíklegt að álfyrirtækin hafi átt uppsafnaðar birgðir frá nóvember þar sem útflutningurinn var með minna móti í þeim mánuði. Sömu sögu má segja varðandi útflutning sjávarafurða en einhverrar sölutregðu hefur gætt á erlendum mörkuðum á íslensku sjávarfangi auk þess sem verð sjávararfurða hefur lækkað. Þrátt fyrir styrkingu á meðalgengi krónunnar um 5,8% milli nóvember og desember er reiknað með að vegna aukins útflutnings hafi útflutningsverðmæti sjávarafurða verið með besta móti í desember.
Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Sjá meira