Mátu lántakendur áhættusama en lánuðu þeim samt milljarða Helga Arnardóttir. skrifar 4. ágúst 2009 19:02
Tveir af stærstu hluthöfum og viðskiptavinum Kaupþings voru taldir áhættusamir lántakendur í lánayfirliti bankans vegna þess hversu stór hluti eigna þeirra var í bankanum sjálfum. Þeir keyptu hlutina fyrir lánsfé frá Kaupþingi og skulduðu þar alls 240 milljarða. Tveir stærstu viðskiptavinir Kaupþings í Lúxemburg, Kevin G. Stanford sem var viðskiptafélagi Baugs og Skúli Þorvaldsson, skulduðu bankanum rúma 240 milljarða króna þann 25. september síðastliðinn. Ekki verður séð af lánayfirliti Kaupþings sem lekið var á netið að persónuleg áhætta þessara manna hafi verið mikil. Skúli skuldaði 140 milljarða og Kevin Stanford rúma 100. Skúli átti hluti í Kaupþingi, Existu og í norræna tryggingarisanum Sampo sem og skuldabréf sem voru gefin út á Kaupþing. Verðmæti skuldabréfanna voru þrettán milljarðar króna. Exista var stærsti hluthafinn í Kaupþingi og í Sampó. Í lánayfirlitinu kemur fram að Kaupþing telji lán til Skúla vera áhættusöm því afkoma hans hafi verið of tengd gengi Kaupþings og hafi verið langstærsti hlutinn í eignasafni hans. Hafa skal í huga að Skúli fjármagnaði kaupin á bréfum í Kaupþingi og Existu með láni frá Kaupþingi sjálfu. Kevin Stanford hins vegar var fjórði stærsti hluthafi Kaupþings þegar lánayfirlitið var birt skuldaði bankanum um 100 milljarða. Í yfirlitinu kemur fram að helsta áhættan vegna Stanford sé sú að 45 prósent af eignasafni hans sé hlutur í Kaupþingi, hlutur sem einnig var fjármagnaður með lánum frá bankanum sjálfum. Samkvæmt yfirlitinu lánaði Kaupþing Stanford 18 milljarða til að fjármagna kaup á hlutum í Kaupþingi á árinu 2008.
Mest lesið Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Viðskipti innlent Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Viðskipti innlent Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Viðskipti innlent Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Viðskipti innlent Methagnaður norska olíusjóðsins Viðskipti erlent 50+ konur eru framtíðin fyrir gjörbreyttan vinnumarkað Atvinnulíf Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Viðskipti innlent Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Viðskipti innlent Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Viðskipti innlent Skordýr í dillinu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Sjá meira