Viðskipti innlent

Mál Vilhjálms gæti kostað stjórn Glitnis 35 milljarða kr.

Dómsmál það sem Vilhjálmur Bjarnason vann gegn stjórn Glitnis fyrir héraðsdómi Reykjavíkur í dag gæti kostað stjórn Glitnis 35 milljarða kr. Þetta segir Vilhjálmur í samtali við Fréttastofu.

Vilhjálmur fékk skaðabætur upp á 1,9 milljón kr. auk lögfræðkostnaðar. Um 11.000 hluthafar voru í Glitni þegar stjórn bankans ákvað að kaupa hluti Bjarna Ármannssonar á yfirverði. Ef þeir allir höfða mál á sömu forsendum og Vilhjálmur hljóðar reikningurinn upp á 35 milljarða kr..

Vilhjálmur segir að stærstu hluthafarnir, eins og t.d. Stoðir, geta ekki höfðað mál, svipað og hann gerði, þar sem þeir stóðu að gerningum sem dæmt var um.

"Ég er mjög ánægður með þessa niðurstöðu," segir Vilhjálmur. "Dómurinn er kennslustund í hluthafarétti og hann féllst á öll mín sjónarmið hvað hlutabréfalöggjöfina varðar. Þetta er stórt réttlætismál fyrir minni hluthafa í félögum."

Ekki hefur verið tekin ákvörðun að hálfu stjórnarinnar hvort málinu verði áfrýjað.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×