Krónan hefur ekki verið sterkari síðan fyrir bankahrunið 18. febrúar 2009 11:54
Krónan heldur áfram að sækja í sig veðrið og er gengi hennar nú hærra gagnvart flestum helstu gjaldmiðlum en verið hefur frá bankahruninu í október. Greining Glitnis fjallar um málið í Morgunkorni sínu. Þar segir að gærdagurinn var hagfelldur íslensku krónunni og styrktist hún um 1,5% ef miðað er við gengisvísitölu. Gagnvart evru var styrkingin raunar ríflega 2%, enda lækkaði gengi evru talsvert gagnvart öðrum gjaldmiðlum í gær. Það sem af er degi hefur ládeyða ríkt á gjaldeyrismarkaði og er gengi krónu óbreytt frá opnun þegar þetta er ritað (kl.11:30). Evran kostar nú tæpar 144 krónur og hefur ekki verið ódýrari síðan í septemberlok í fyrra. Bandaríkjadollar kostar 114 krónur en hann fór lægst í 111 krónur fyrir rúmri viku síðan. Dollarinn hefur hækkað verulega gagnvart evrunni undanfarna viku, sem skýrir ólíka þróun þessara tveggja helstu mynta heims gagnvart krónu. Gengisþróun krónu undanfarið mun efalítið kæta sendinefnd AGS sem ræðst á næstu dögum í fyrstu endurskoðun efnahagsáætlunar sjóðsins og íslenskra stjórnvalda. Í endurskoðuninni verður m.a. tekið tillit til einhverrar afléttingar á gjaldeyrishöftum þeim sem í gangi eru. Miðað við að horfur á lánveitingum nágrannaþjóða til Íslands virðast góðar og að því gefnu að greiðslujafnaðartölur fyrir síðasta fjórðung nýliðins árs, sem birtar verða í næstu viku, verði hagfelldar ættu því að vera allgóðar líkur á að hafist verði handa við afléttingu einhvers hluta gjaldeyrishaftanna á næstunni.
Mest lesið Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Viðskipti erlent Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Viðskipti innlent Kalla inn pylsur vegna prentvillu Neytendur Tók fimm mánuði að byrja að tala íslensku Atvinnulíf Hreiðar Már og Kristján Ara sleppa líklega undan ábyrgð Viðskipti innlent „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ Viðskipti innlent Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Viðskipti innlent Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Viðskipti innlent Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Viðskipti innlent Innkalla frosin hindber eftir að skordýr fannst í pokanum Neytendur Fleiri fréttir Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Sjá meira