Viðskipti innlent

Veitir 100 milljón kr. styrk til ferðaþjónustunnar

Iðnaðarráðuneytið hefur ákveðið að veita 100 milljónum króna af byggðaáætlun 2006-2009 til að styrkja uppbyggingu í ferðaþjónustu.

Styrkirnir skiptast í tvo flokka og er nauðsynlegt að verkefnið sé atvinnuskapandi á viðkomandi svæði. Greint er frá þessu á vefsíðu samtaka sveitarfélaga.

Flokkarnir eru annarvegar móttökuaðstaða í höfnum fyrir farþega skemmtiferðarskipa, en varið verður 30 milljónum til upplýsingagjafar, fegrunar umhverfis, uppsetningar þjónustuhúss o.fl.

Hinn flokkur inn er nýsköpun í ferðaþjónustu, en varið verður 70 milljónum króna til uppbyggingar á nýjum svæðum, þróun á nýrri vöru eða þjónustu er styrkir viðkomandi svæði sem ferðamannastað. Við mat á umsóknum verður sérstaklega horft til nýsköpunargildis þeirrar vöru eða þjónustu sem sótt er um.

Styrkir geta að hámarki náð 50% af heildarkostnaði verkefnisins. Leitað er eftir umsóknum frá klösum í ferðaþjónustu, sveitarfélögum, fyrirtækjum, einstaklingum og félagasamtökum.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×