AGS: Erlendar skuldir á bilinu 307-350% 14. desember 2009 15:02
Erlendar skuldir einkaaðila eru hærri en áður var talið, og því er skuldahlutfall Íslands hærra en það var við fyrstu endurskoðun á efnahagsáætlun Íslands og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS). Liggur það á bilinu 307-350%. Sendinefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðsins segir að skuldir hins opinbera séu lægri en talið var við fyrstu endurskoðun á efnahagsáætlun Íslands. Það sé aðallega vegna þess að mun minni kostnaður hefur hlotist af endurreisn bankakerfisins en áætlað var í fyrstu. Þar ræður mestu að erlendir kröfuhafar hafa tekið yfir stærstan hlut í Arion banka og Íslandsbanka, sem minnkar fjárinnspýtingu ríkisins í bankana. Erlendar skuldir einkaaðila séu hins vegar hærri en áður var talið, og því sé skuldahlutfallið margumrædda hærra en það var við fyrstu endurskoðun. Þá voru erlendar heildarskuldir þjóðarbúsins taldar 307% af landsframleiðslu. Morgunblaðið greindi frá því fyrir skömmu að skuldahlutfallið væri nú komið upp í 350%, vegna hærri skulda einkageirans. Mark Flanagan, yfirmaður sendinefndar AGS, segir að ekki sé búið að leggja endanlegt mat á stöðuna, en hlutfallið sé einhversstaðar á þessu bili. Það sé þó nær 307% en 350%. Þessi hækkun á heildarskuldum þjóðarbúsins hefur þó ekki umtalsvert áhrif á getu þjóðarinnar til að standa undir skuldunum, að mati sendinefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.
Tengdar fréttir AGS með blaðamannafund Mark Flanagan, yfirmaður sendinefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á Íslandi og Franek Rozwadowski, sendifulltrúi sjóðsins, kynna vinnu sendinefndarinnar og árangur viðræðna við íslensk stjórnvöld á fundi í dag. Sendinefnd AGS kom til landsins í byrjun mánaðarins og hefur staðið í viðræðum við stjórnvöld síðan þá um aðra endurskoðun á efnahagsáætlun Íslands. 14. desember 2009 12:03 Gylfi ánægður með árangurinn af heimsókn AGS Gylfi Magnússon efnahags- og viðskiptaráðherra er ánægður með árangurinn ef heimsókn sendinefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) til Íslands. Heimsóknin var liður í annarri endurskoðun sjóðsins á framkvæmd efnahagsáætlunar ríkisstjórnarinnar og AGS. 14. desember 2009 14:41 AGS: Samkomulag um aðra endurskoðun Íslensk stjórnvöld og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hafa náð samkomulagi um aðra endurskoðun á efnahagsáætlun Íslands. Þetta var tilkynnt á fundi með forsvarsmönnum AGS á Íslandi, þeim Mark Flanagan og Franek Roswadovski. Sendinefnd sjóðsins hefur fundað með stjórnvöldum hér á landi og öðrum áhrifamönnum úr viðskiptalífi landsins og fulltrúum launþega síðustu vikur. Búist er við því að hægt verði að leggja áætlunina fyrir framkvæmdastjórn AGS í janúar á næsta ári. 14. desember 2009 13:34 Mest lesið Möguleg endalok ferilsins: Hræðist að tapa fyrir eiginkonunni Atvinnulíf Vara við afleiðingunum Viðskipti innlent Innkalla hrísgrjón vegna skordýraleifa Neytendur NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Viðskipti innlent Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Viðskipti innlent Leitað að fyrirmyndum í öryggismálum fyrirtækja Samstarf Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Viðskipti innlent Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Viðskipti innlent Skordýraeitur á Pinkids eplum í öskju Neytendur Þegar allt er að fara fjandans til… Atvinnulíf Fleiri fréttir Vara við afleiðingunum NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Hermann framkvæmdastjóri Fálkans Ísmars Telur Þórð hafa misskilið en sama tala varð niðurstaðan Fjórar af hverjum fimm íbúðum seljast undir auglýstu verði: „Við höfum miklar áhyggjur“ Bundu nær allan koltvísýring og brennistein á Hellisheiði Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Íslandshótelum Ráðin markaðsstjóri Prís Saka Símann um undirboð með áskriftarpakka Opna nýtt kaffihús í Listasafni Reykjavíkur Svona er umhorfs í endurbættri fríhöfn Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar 65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? Atli Þór til Almannaróms Sjö milljarðar gætu farið frá ríki til flugfélaga með sérlausn Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Reiðarslag, gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí“ Færri tengifarþegar en fleiri komu til Íslands Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi „Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð Sjá meira
AGS með blaðamannafund Mark Flanagan, yfirmaður sendinefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á Íslandi og Franek Rozwadowski, sendifulltrúi sjóðsins, kynna vinnu sendinefndarinnar og árangur viðræðna við íslensk stjórnvöld á fundi í dag. Sendinefnd AGS kom til landsins í byrjun mánaðarins og hefur staðið í viðræðum við stjórnvöld síðan þá um aðra endurskoðun á efnahagsáætlun Íslands. 14. desember 2009 12:03
Gylfi ánægður með árangurinn af heimsókn AGS Gylfi Magnússon efnahags- og viðskiptaráðherra er ánægður með árangurinn ef heimsókn sendinefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) til Íslands. Heimsóknin var liður í annarri endurskoðun sjóðsins á framkvæmd efnahagsáætlunar ríkisstjórnarinnar og AGS. 14. desember 2009 14:41
AGS: Samkomulag um aðra endurskoðun Íslensk stjórnvöld og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hafa náð samkomulagi um aðra endurskoðun á efnahagsáætlun Íslands. Þetta var tilkynnt á fundi með forsvarsmönnum AGS á Íslandi, þeim Mark Flanagan og Franek Roswadovski. Sendinefnd sjóðsins hefur fundað með stjórnvöldum hér á landi og öðrum áhrifamönnum úr viðskiptalífi landsins og fulltrúum launþega síðustu vikur. Búist er við því að hægt verði að leggja áætlunina fyrir framkvæmdastjórn AGS í janúar á næsta ári. 14. desember 2009 13:34