AGS: Samkomulag um aðra endurskoðun 14. desember 2009 13:34 Franek Roswadovski og Mark Flanagan.
Íslensk stjórnvöld og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hafa náð samkomulagi um aðra endurskoðun á efnahagsáætlun Íslands. Þetta var tilkynnt á fundi með forsvarsmönnum AGS á Íslandi, þeim Mark Flanagan og Franek Roswadovski. Sendinefnd sjóðsins hefur fundað með stjórnvöldum hér á landi og öðrum áhrifamönnum úr viðskiptalífi landsins og fulltrúum launþega síðustu vikur. Búist er við því að hægt verði að leggja áætlunina fyrir framkvæmdastjórn AGS í janúar á næsta ári. Viðræður AGS og stjórnvalda snérust fyrst og fremst um fjárhagsáætlun næsta árs, skuldir hins opinbera og hvaða skref verði tekin þegar kemur að því að endurfjármagna bankakerfið til fulls og styrkja eftirlitið með fjármálastofnunum landsins. Í yfirlýsingu frá AGS segir að þrátt fyrir að Íslendingar standi frammi fyrir miklum vanda hafi aðgerðir ríkisstjórnarinnar fram að þessu orðið til þess að kreppan sé vægari en óttast var um í fyrstu. Gert er ráð fyrir að hagvöxtur verði á næsta ári og með styrkri stjórn á peningamálastefnu landsins ætti að vera hægt að ná jafnvægi á krónuna og draga úr verðbólgu. Þá segir að skuldir hins opinbera hafi lækkað frá fyrstu endurskoðun áætlunarinnar þó að skuldir þjóðarbúsins í heild séu heldur hærri en þar komi til skuldir einkafyrirtækja. Sú hækkun hefur þó að sögn AGS ekki umtalsverð áhrif á getu þjóðarinnar til þess að borga af skuldum sínum.
Mest lesið Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Innlent Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Fleiri fréttir Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi Sjá meira