Viðskipti innlent

Hafmynd selur tvo dvergkafbáta til Bretlands

Hafmynd gekk frá sölu á tveimur kafbátum til Bretlands í síðustu viku. Kaupandinn er fyrirtækið NCS sem vinnur við m.a.  pípueftirlit fyrir olíufélög víða um heiminn.

Júlíus B. Benediktsson framkvæmdastjóri Hafmyndar segir að þeir séu að vonum ánægðir með þessa sölu til NCS enda geti hún skapað fleiri tækifæri fyrir Hafmynd.

"Þessir kafbátar sem við seldum NCS munu í fyrstu verða notaðir við pípueftirlit fyrir BP olíufélagið í Kaspíahafi í vor og munum við verða Bretunum innanhandar í fyrstu við þetta verkefni," segir Júlíus.

Fram kemur í máli Júlíusar að Hafmynd sé nú að ná þeim árangri sem að var stefnt og hann er bjartsýnn á framtíð fyrirtækisins.

Þá stendur til að Hafmynd afhendi Háskóla Íslands einn af þeim kafbátum sem fyrirtækið smíðar og er ætlunin að hann nýtist skólanum við ýmiskonar rannsóknir í framtíðinni.

Kafbátar Hafmyndar heita Gaiva. Þeir eru sjálfstýrðir og þarf aðeins einn eða tvo menn til að sjósetja þá. Dvergkafbátana er hægt að nota við sprengjuleit, rannsóknir, eftirlit og mælingar neðansjávar á allt að tvö þúsund metra dýpi.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×