Raunlækkun íbúðaverðs í borginni 15% frá áramótum 20. júlí 2009 12:21
Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu lækkaði um 0,4% í júní frá fyrri mánuði samkvæmt upplýsingum frá Fasteignaskrá Íslands. Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu hefur nú lækkað um 9,5% að nafnvirði og um 15% að raunvirði frá áramótum talið. Búast má við að íbúðaverð muni enn gefa eftir á næstu misserum. Greining Íslandsbanka fjallar um málið í Morgunkorni sínu. Þar segir að frá því að hápunktinum var náð á íbúðamarkaði í byrjun síðasta árs hefur íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu lækkað um 13% að nafnvirði og 32% að raunvirði en opinberar spár um þróun húsnæðisverðs á næstu misserum gera ráð fyrir að áður en yfirstandandi lægð muni ljúka á fasteignamarkaði árið 2011 muni raunverðslækkun íbúðaverðs nema hátt í 50% frá því að hápunktinum var náð. Samkvæmt því mati er enn umtalsverð lækkun húsnæðisverðs í pípunum. Á sama tíma og íbúðaverð lækkar fer byggingarkostnaður hækkandi en samkvæmt vísitölu byggingarkostnaðar sem Hagstofan birti nú í morgun hækkar byggingarkostnaður um 1,8% í júlí frá fyrri mánuði. Á síðustu 12 mánuðum hefur byggingarkostnaður hækkað um 10,3% og íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu hefur á sama tímabili lækkað um 10,8%.Arðsemi í byggingu íbúða hefur því dregist umtalsvert saman á síðustu misserum en mikil arðsemi einkenndi þennan iðnað síðustu ár og átti ríkan þátt í þeim miklu fjárfestingum og framkvæmdum sem áttu sér stað í nýbyggingum íbúða.Dregið hefur verulega úr byggingu íbúðarhúsnæðis undanfarið og eiga minnkandi arðsemi og samdráttur í eftirspurn auk gjörbreyttra aðstæðna varðandi fjármögnunarmöguleika stærstan þátt í þeirri þróun.
Mest lesið Fjármálaráðherra veldur fyrrverandi varaformanni Viðreisnar vonbrigðum Viðskipti innlent Höskuldur nýr framkvæmdastjóri afþreyingar- og ævintýrasviðs Viðskipti innlent Stærstu afrekin að koma öllum út úr húsi á tíma Atvinnulíf Samruni Paramount og Warner Bros samþykktur Viðskipti erlent Svona kemur þú í veg fyrir tvær kröfur vegna kílómetragjalds Neytendur Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Viðskipti innlent Fyrsta hækkun stýrivaxta í Evrópu síðan árið 2023 Viðskipti erlent Hefja rannsókn á Ryanair Viðskipti erlent Björgvin kjörinn nýr formaður FHG Viðskipti innlent Sögulegri skráningu SpaceX lokið Viðskipti erlent Fleiri fréttir Fjármálaráðherra veldur fyrrverandi varaformanni Viðreisnar vonbrigðum Höskuldur nýr framkvæmdastjóri afþreyingar- og ævintýrasviðs Enn fjölgar aflýsingum Ferðaþjónusturisar hætta við samruna Deilan harðnar á ný: Fleiri aflýsingar hjá Icelandair Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Ísland sjaldnast uppfyllt upptökuskilyrði fyrir evru Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Björgvin kjörinn nýr formaður FHG Festa og Gildi vilja sameinast Halli ríkissjóðs eykst um tugi milljarða milli ára Kanna hvort pottur hafi verið brotinn hjá Oculis Matvælaverð hafi hækkað minna en laun frá 2020 Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Skýrsla AGS: Aukin hætta á minni hagvexti og meiri verðbólgu Grátlegt hversu miklum peningum fólk tapar í fjársvikum Sjálfsafgreiðslukassarnir skili ekki lægra vöruverði Nýir kælar og kjúklingastaður í Lindunum eftir stærstu endurbætur Krónunnar Stjórnvöld geti gert miklu meira til að lækka matvöruverð Forstjóri Kviku hyggst láta af störfum Ráðinn staðarverkfræðingur Nýs Landspítala á Akureyri Uppsagnir hjá Brimi á Vopnafirði Hopp tekur rafræn ökuskírteini í notkun í appinu Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Sjá meira