Viðskipti innlent

Exista leitar samninga um frestun á greiðslu vaxta og afborgana

Staða Exista er óljós af þeim sökum og hyggst félagið leita samninga um frestun á greiðslu vaxta og afborgana á skuldbindingum félagsins sem koma til gjalddaga á meðan á þeim viðræðum stendur.

Í tilkynningu um málið segir að Exista muni því leita samkomulags við handhafa skráðra skuldabréfa og víxla félagsins um frestun afborgana og vaxtagreiðslna sem koma til gjalddaga á næstunni.

Eins og áður hefur komið fram í tilkynningum Exista til Kauphallar, m.a. frá 17. desember 2008, þá á Exista í viðræðum við innlendar og erlendar fjármálastofnanir um endurskoðun lánasamninga og uppgjör gagnkvæmra krafna.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×