Ríkisbankarnir hygla fyrirtækjum í þeirra eigin eigu 30. apríl 2009 19:08 Víglundur Þorsteinsson, stjórnarformaður BM Vallá.
Dæmi eru um að ríkisbankarnir hafi milligöngu um óeðlilega fyrirgreiðslu til fyrirtækja í þeirra eigin eigu og háttsettir bankastarfsmenn sitji beggja vegna borðs við afgreiðslu mála. Þetta er engan veginn í lagi, segir stjórnarformaður BM Vallár, sem telur samkeppnisstöðu fyrirtækja verulega skekkta. Fjölmörg fyrirtæki eru nú rekin beint eða óbeint af ríkisbönkunum, en orðrómur er um að þau fái aðra og betri fyrirgreiðslu en önnur fyrirtæki. Samtök iðnaðarins telja að skil milli eðlilegrar bankastarfsemi og eignarhalds á samkeppnisfyrirtækjum kunni að vera blandað saman með óeðlilegum hætti og hafa sent bréf með fyrirspurn um reglur og vinnulag til stjórnenda bankanna. Steypufyrirtækið BM Vallá er staðfest dæmi um skekkta samkeppnisstöðu. Víglundur Þorsteinsson, stjórnarformaður BM Vallá, segir að í tvígang hafi viðskipti verið færð frá BM Vallá til Steypustöðvarinnar, annars vegar vegna þrýstings úr Íslandsbanka og hins vegar vegna þess að Íslandsbanki fjármagnar framkvæmdir verktaka. Að hans sögn eru hæg heimatökin því forstöðumaður lánaeftirlits Íslandsbanka er jafnframt stjórnarformaður Steypustöðvarinnar og situr því beggja vegna borðs. „Þannig er það samkvæmt hlutafélagaskrá og er engan veginn í lagi. Þess vegna kvörtuðum við formlega og óskuðum eftir viðbrögðum og svörum," segir Víglundur. Fleiri dæmi eru um slík hagsmunatengsl og segir Víglundur þau ólíðandi.
Mest lesið Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Viðskipti innlent Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Viðskipti innlent Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Viðskipti erlent Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Viðskipti innlent Ósýnilegir múrar: „Ekki nóg að segja bara að fólk eigi að vinna saman“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Sjá meira