Innlent

Langflestir á unglingsaldri

Langflestir þeirra sem smitast hafa af svínaflensu á Íslandi eru á aldrinum 15 til 19 ára. Alls hafa nú 72 smitast af flensunni hérlendis.

Eru 23 hinna smituðu á aldrinum 15 til 19 ára og 11 börn á aldrinum 5 til 14 ára hafa greinst. Þá eru 22 hinna smituðu á milli tvítugs og þrítugs, og 8 á milli þrítugs og fertugs. Aðeins hefur einn maður á fimmtugsaldri greinst með flensuna en 7 manns á aldrinum 50 til 64 ára.

Hlutfall kynjanna er nokkuð jafnt, en 37 karlar og 35 konur hafa smitast. - þeb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×