Höfða mál vegna peningamarkaðssjóða 19. janúar 2009 18:52
Á annan tug manna hefur höfðað mál á hendur Landsbanka Íslands vegna rýrnun peningamarkaðsjóðsins í aðdraganda bankahrunsins. Um 56 milljarðar króna voru leystir út úr honum á dagana fyrir lokun. Til viðbótar við þá sem þegar hafa stefnt bankanum, eru um um tíu til fimmtán manns sem bíða eftir frekari upplýsingum um fjárfestingar peningamarksaðssjóðs Landsbankans, eignasamsetningu, tryggingar á bak við skuldabréfin og önnur atriði, til að mynda verðamat á bréfum sem var skert um 35 prósent við slit sjóðsins. Sjóðurinn lækkaði úr tæpum 160 milljörðum í 102 milljarða síðustu vikuna fyrir bankahrunið. Orðrómur er um að völdum viðskiptavinum bankans, starfsmönnum og öðrum tengdum aðilum, hafi verið bent á að leysa út bréf sín í peningamarkaðssjóðnum síðustu dagana fyrir hrun. Jóhann H. Hafstein héraðsdómslögmaður segist hafa heyrt þann orðróm. Hann hafi þó engar áreiðanlegar heimildir fyrir öðru en því að það hafi verið mikið áhlaup á sjóðinn.57 milljarðar hafi verið leystir út síðust vikuna fyrir lokun. Þessar tölur hafa fengist staðfestar í Nýja Landsbankanum, en jafnframt var þess getið að fólk hefði einnig lagt inn í sjóðinn síðustu daga fyrir fall bankans, fólk sem átti háar innistæður á venjulegum innlánsreikningum og vildi dreifa fjármagni sínu. Í síðustu viku var kveðinn upp úrskurður í Héraðsdómi Reykjavíkur um að fyrrverandi framkvæmdastjóri og stjórnarmaður Landsvaka, sem annaðist reksturs peningamarkaðssjóðsins, væri skylt að mæta fyrir Héraðsdóm til að veita upplýsingar, sem fjárfestar höfðu engan aðgang haft að. Væntanlega munu öll kurl þó ekki koma til grafar fyrr en fjallað verður um málið fyrir dómi. Tekið skal fram að Fjármálaeftirlitið skoðar einnig rekstur allra peningamarkaðssjóða bankanna. ---------------------------------
Mest lesið Bensínverð hefur lækkað Viðskipti innlent Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Atvinnulíf Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Viðskipti erlent Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Viðskipti erlent Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Viðskipti innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Viðskipti innlent Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Viðskipti innlent Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Viðskipti erlent Húsnæði Kjötborgar til sölu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Sjá meira
Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent
Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent