Áætlun um afnám gjaldeyrishafta kynnt á morgun 4. ágúst 2009 11:55
Á morgun, miðvikudaginn 5. ágúst mun Seðlabankinn kynna einstaka áfanga áætlunar sem ríkisstjórnin hefur nú samþykkt um afnám gjaldeyrishafta. Seðlabankinn samdi áætlunina í samráði við viðskiptaráðuneytið og Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Áætluninni er skipt í áfanga og að uppfylltum skilyrðum verður byrjað á að aflétta takmörkunum á fjármagnshreyfingum sem ekki eru líklegar til að valda óstöðugleika, en öðrum höftum ekki fyrr en þeim áfanga hefur verið lokið með góðum árangri líkt og segir í tilkynningu Seðlabankans sem birt var á föstudaginn í síðustu viku. Gæti valdið tímabundinni veikingu krónunnar Ljóst hefur verið um nokkurt skeið að stefnan væri að afnema gjaldeyrishöftin á tíma efnahagsáætlunar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og íslenskra stjórnvalda. Hinsvegar hefur undanfarið nokkuð borið á efasemdum um að afnám yrði að veruleika og að höftum yrði jafnvel haldið næstu árin og fram að mögulegri evruupptöku. Þetta kemur fram í morgunkorni Íslandsbanka. Þó svo að skýr stefna í þessum efnum sé af hinu góða gæti hún átt eftir að valda frekari veikingu krónunnar um tíma, enda líklega enn frekari hvati fyrir eigendur gjaldeyris að bíða með sölu hans uns krónan hefur tekið út veikingu eftir vænta fleytingu. Þegar hefur verið greint frá fyrsta áfanga ofangreindrar áætlunar um afnám gjaldeyrishafta. Gert er ráð fyrir að hafist verði handa 1. nóvember næstkomandi með afnámi hafta á nýjar fjárfestingar. Um er að ræða fremur varfærið skref í afnámi hafta og ólíklegt að það muni hafa nein umtalsverð áhrif á gengi krónunnar þegar til þess kemur.Óvissa um tímasetningar Eitt af skilyrðunum fyrir því að byrjað verði á afnámi gjaldeyrishaftanna 1. nóvember næstkomandi er að þá verði búið að afla nægs gjaldeyrisforða til þess að mæta tímabundnum óstöðugleika á gjaldeyrismarkaði, ef til hans kemur. Enn er talsverð óvissa í þessum málum en í lok síðustu viku var tilkynnt að töf verði á því að framkvæmdastjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins taki fyrir endurskoðun efnahagsáætlunar íslenskra stjórnavalda. Þar með tefst að greiða út annan hluta lánsins frá sjóðnum samtals 155 milljónir dollara. Að sama skapi hafa verið tafir á lánum frá hinum norðurlöndunum. Til grundvallar liggur að Icesave-samkomulagið hefur ekki enn verið samþykkt á Alþingi.
Mest lesið Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Viðskipti innlent Möguleg endalok ferilsins: Hræðist að tapa fyrir eiginkonunni Atvinnulíf Leitað að fyrirmyndum í öryggismálum fyrirtækja Samstarf Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Viðskipti innlent Innkalla hrísgrjón vegna skordýraleifa Neytendur Vara við afleiðingunum Viðskipti innlent NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Viðskipti innlent Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Viðskipti innlent Þegar allt er að fara fjandans til… Atvinnulíf Skordýraeitur á Pinkids eplum í öskju Neytendur Fleiri fréttir Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Vara við afleiðingunum NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Hermann framkvæmdastjóri Fálkans Ísmars Telur Þórð hafa misskilið en sama tala varð niðurstaðan Fjórar af hverjum fimm íbúðum seljast undir auglýstu verði: „Við höfum miklar áhyggjur“ Bundu nær allan koltvísýring og brennistein á Hellisheiði Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Íslandshótelum Ráðin markaðsstjóri Prís Saka Símann um undirboð með áskriftarpakka Opna nýtt kaffihús í Listasafni Reykjavíkur Svona er umhorfs í endurbættri fríhöfn Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar 65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? Atli Þór til Almannaróms Sjö milljarðar gætu farið frá ríki til flugfélaga með sérlausn Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Reiðarslag, gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí“ Færri tengifarþegar en fleiri komu til Íslands Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi „Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Sjá meira