Ný lög myndu gera fjármagnsflutningara erfiðari 24. febrúar 2009 18:38
Erfiðara verður að svíkja undan skatti með því að flytja fjármagn til skattaparadísa ef nýtt frumvarp sem nú er í smíðum nær fram að ganga. Gera má ráð fyrir að íslenska ríkið verði af að minnsta kosti þremur milljörðum króna árlega vegna skattsvika af þessu tagi. Fjöldinn allur af íslenskum félögum hafa verið skráð í skattaparadísum og hefur fólk þannig getað sniðgengið skattalög. Þá bendir flest til þess að íslenska ríkið hafi orðið af umtalsverðum skatttekjum vegna þessa. Nú er í smíðum frumvarp í fjármálaráðuneytinu með aðkomu ríkisskattstjóra sem mun styrkja skattaframkvæmd sérstaklega með tilliti til skattsvika í tengslum við fjármagnsflutninga til skattaparadísa. Frumvarpið gengur m.a. út á að innlendum fjármálafyrirtækjum verði gert skylt að upplýsa skattayfirvöld um viðskipti íslenskra skattborgara við útibú og dótturfélög þeirra erlendis. Þá er einnig gert ráð fyrir svokallaðri cfc löggjöf sem er við lýði í öllum nágrannalöndum okkar. Með henni verður aðilum sem reka félög í skattaparadísum gert skylt að telja fram eignir og tekjur þeirra félaga. Indriði H. Þorláksson, ráðuneytisstjóri fjármálaráðuneytisins og fyrrum ríkisskattstjóri segir að þrátt fyrir að í frumvarpinu felist miklar breytingar þá verði ekki ómögulegt að svíkja undan skatti. Í frumvarpinu er ekki gert ráð fyrir breytingum á viðurlögum skattalaga en þau geta verið allt frá sektum að fangelsisvist. Indriði segir stefnt að því að frumvarpið verði lagt fram í lok vikunnar.
Mest lesið Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Viðskipti innlent Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Viðskipti innlent Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Viðskipti innlent Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Viðskipti innlent Ástarsaga: Markmiðið að allir verði ástfangnir af LOVE Atvinnulíf Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Viðskipti innlent Einföld hugmynd sem er nú orðin grunnstoð í rekstri þúsunda fyrirtækja Samstarf Fleiri fréttir Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Sjá meira