Meint sýndarviðskipti með hlutabréf í Kaupþingi í rannsókn 11. október 2009 18:32
Meint sýndarviðskipti með hlutabréf í Kaupþingi upp á hátt í 40 milljarða króna eru í rannsókn hjá opinberum aðilum. Viðskipti Gertner-fjölskyldunnar bresku og Katarbúans Al-Thani eru stærstu málin en fjölmargir einstaklingar liggja undir grun. Fjármálaeftirlitið hefur sent fjölmörg mál er varða markaðsmisnotkun og sýndarviðskipti til embættis sérstaks saksóknara. Slík brot geta varðað allt að sex ára fangelsi. Tvö stór mál eru í rannsókn er varða Kaupþing. Í fyrsta lagi er um að ræða kaup sjeiksins Al-Thani frá Katar á fimm prósenta hlut í bankanum fyrir 25,5 milljarða, rétt fyrir bankahrun. Kaupþing lánaði Al-Thani fyrir kaupunum. Þá er Fjármálaeftirlitið einnig að rannsaka kaup Gertner bræðranna Mendi og Moises á 2,5 prósenta hlut í bankanum í júní í fyrra fyrir um 14 milljarða króna. Samkvæmt heimildum snýr rannsóknin meðal annars að því hvort Kaupþing hafi lánað bræðrunum til kaupanna til að auka traust fjárfesta í blekkingarskyni. Samtals er hér um að ræða hlutabréfaviðskipti fyrir um 40 milljarða. Kaup Gertner bræðra á hlut í Kaupþingi eru einnig til skoðunar hjá Serious Fraud Office í Bretlandi sem eins og áður hefur verið greint frá á í samvinnu við sérstakan saksóknara bankahrunsins. Eins og fréttastofa greindi frá í sumar hafa nokkrir aðilar fengið réttarstöðu grunaðs í rannsókninni. Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri bankans og Ólafur Ólafsson, einn stærsti hluthafinn, eru meðal þeirra. Telma Halldórsdóttir, sem sat í stjórn Q Finance Holding, félags Al-Thani og Halldór Bjarkar Lúðvígsson, fyrrverandi starfsmaður hjá lánadeild Kaupþings eru á lista yfir grunaða. Halldór Bjarkar sýslar nú með norrænar eignir bankans fyrir hönd kröfuhafa. Líklegt þykir að Halldór fái stöðu vitnis. Þá herma heimildir fréttastofu að fleiri einstaklingar séu grunaðir í tengslum við kaup Al-Thanis og Gertner bræðra á hlutabréfum í Kaupþingi. Rannsóknaraðilar eru einnig að skoða meinta markaðsmisnotkun hjá Landsbankanum og Glitni. Rannsóknin á meintum sýndarviðskiptum með bréf í Kaupþingi mun vera lengst á veg komin og viðamest.
Mest lesið Vonar að þrjár konur hjá Icelandair hafi fengið hrós Neytendur Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Viðskipti innlent Sumarveisla hjá Toyota í Kauptúni á laugardag Lífið samstarf Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Viðskipti innlent „Krakkarnir spyrja langmest“ – íslenskar fjölskyldur flykkjast á Lava Show Samstarf Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Nathan Viðskipti innlent Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Viðskipti innlent Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Viðskipti innlent Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Ráðinn forstjóri Nathan Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Úr Símanum í rörin Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Telur forstjórann reyna að fara fram hjá stéttarfélaginu „Ekki einhverjir krúttlegir krakkar að leika sér í tölvum“ Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Icelandair grunar flugmenn um græsku Hæstiréttur tekur mál Kvikutoppanna ekki fyrir Bakkavararbróðir kaupir í Kviku fyrir milljarða Gengi Alvotech tekur kipp Alvotech stóðst úttekt FDA Sláandi hve mikið skattarnir hafi hækkað Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Sjá meira