Mannleg mistök orsök rannsóknar á Íslenska lífeyrissjóðnum 18. mars 2009 13:35
Stjórn Íslenska lífeyrissjóðsins hefur sent frá sér yfirlýsingu í tilefni af frétt þess efnis að Fjármálaráðuneytið hafi skipað umsjónaraðila yfir stjórn sjóðsins. Þar segir að um mannleg mistök hafi verið að ræða að sjóðurinn hafi verið fyrir utan fjárfestingarheimildir sínar. Yfirlýsingin í heild hljóðar svo: „Stjórn sjóðsins tekur ákvarðanir um fjárfestingastefnu sjóðsins en kemur ekki að ákvörðunum varðandi einstakar fjárfestingar. Sjóðurinn er með rekstrarsamning við Landsbankann en samkvæmt honum sér hann um daglegan rekstur sjóðsins. Varsla og viðskiptaumsjón Landsbankans annast skil á skýrslum til FME og annarra opinberra aðila. Í þessum skýrslum koma fram upplýsingar um hlutfall stærstu útgefanda í eignasafni lífeyrissjóðsins. Innra eftirlit eignastýringarsviðs hefur einnig það hlutverk að taka út stöðu sjóðsins og kanna hvort hann starfi innan þeirra marka sem sett eru í fjárfestingarstefnum og lögum um lífeyrissjóði. Einnig annast innri endurskoðun bankans innra eftirlit hans. Rétt er að árétta að sjóðstjóri hefur ekki heimild til að vita nákvæmlega um eignastöðu verðbréfa- og fjárfestingarsjóða rekstrarfélaga, hann verður að reiða sig á aðra aðila sem geta reiknað út stöðu sjóðsins. Þessi tilhögun hefur verið viðhöfð í meira en áratug hjá eignastýringarsviði Landsbankans og reynst vel fram til þessa. Á stjórnarfundi þann 14. janúar sl. upplýsti þáverandi framkvæmdastjóri sjóðsins stjórnina um að komið hefði í ljós að sjóðurinn hefði verið fyrir utan fjárfestingarheimildir vegna mistaka sem áttu sér stað fyrst í mars á síðasta ári. Það félag sem þetta á aðallega við er Kaupþing banki og einnig koma fram óveruleg frávik á takmörkuðum tímabilum hjá Samson eignarhaldsfélagi, Baugi og Atorku. Jafnframt kom fram að um mannleg mistök væri að ræða og að Landsbankinn væri tryggður ef tjón hefði orðið vegna þessa. Stjórn sjóðsins óskaði strax eftir því við Landsbankann að þessi mistök yrðu leiðrétt. Stjórn sjóðsins hefur lagt sig fram um að hafa góð samskipti við FME og því koma þessar aðgerðir henni á óvart. Stjórn sjóðsins er ekki kunnugt um nein önnur atriði sem geta gefið tilefni til þeirra aðgerða sem yfirvöld hafa gripið til. Stjórn sjóðsins mun aðstoða sérstakan saksóknara og umsjónaraðila sjóðsins í þeirra störfum. Þessar aðgerðir hafa engin áhrif á eignastöðu Íslenska lífeyrissjóðsins eða réttindi sjóðfélaga."
Mest lesið Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Sjá meira