Peningastefnunefnd er orðin fullskipuð 3. mars 2009 13:39
Forsætisráðherra hefur í dag skipað tvo fulltrúa í peningastefnunefnd samkvæmt nýju ákvæði í lögum nr. 36/2001, um Seðlabanka Íslands, með síðari breytingum. Þau eru Anne Sibert, Dr. í hagfræði og prófessor við Birkbeck College, University of London og Gylfi Zoega, Dr. í hagfræði og prófessor við Háskóla Íslands. Formaður peningastefnunefndarinnar er Svein Harald Øygard, Seðlabankastjóri og fulltrúar Seðlabanka Íslands í nefndinni eru auk hans Arnór Sighvatsson, aðstoðarseðlabankastjóri og Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur Seðlabanka Íslands. Í tilkynningu um málið segir að ákvarðanir um beitingu stjórntækja Seðlabanka Íslands í peningamálum eru teknar af peningastefnunefnd. Stjórntæki bankans teljast í þessu sambandi vera vaxtaákvarðanir hans, viðskipti við lánastofnanir önnur en tilgreind eru í lögum, ákvörðun bindiskyldu og viðskipti á gjaldeyrismarkaði sem hafa það að markmiði að hafa áhrif á gengi krónunnar. Ákvarðanir peningastefnunefndar skulu grundvallast á markmiðum Seðlabanka Íslands og vönduðu mati á ástandi og horfum í efnahags- og peningamálum og fjármálastöðugleika. Í peningastefnunefnd sitja seðlabankastjóri, sem er formaður, aðstoðarseðlabankastjóri, einn af yfirmönnum bankans á sviði mótunar eða stefnu í peningamálum og tveir sérfræðingar á sviði efnahags- og peningamála sem forsætisráðherra skipar. Anne Sibert er prófessor og deildarstjóri við School of Economics, Mathematics and Statistics í Birbeck College í London. Anne á ennfremur sæti í CEPR (Centre for Economic and Policy Research) stofnuninni. Anne gengdi stöðu hagfræðings hjá bankastjórn bandaríska Seðlabankans í Washington. Rannsóknir hennar hafa fyrst og fremst verið á sviði þjóðhagfræði með sérstaka áherslu á peningahagfræði. Hún hefur veitt fjölmörgum stofnunum ráðgjöf á sviði efnahagsmála og verið aðstoðarritstjóri Economic Journal í Bretlandi. Anne Sibert lauk doktorsprófi í hagfræði frá Carnegie-Mellon háskóalanum í Bandaríkjunum árið 1982. Gylfi Zoëga lauk cand. oecon. prófi frá Háskóla Íslands árið 1987 Hann nam við Columbia-háskólann í Bandaríkjunum.og lauk þaðan meistaraprófi í hagfræði árið 1989, M.Phil prófi 1991 og doktorsprófi árið 1993. Að námi loknu lagði Gylfi stund á rannsóknir og háskólakennslu erlendis. Hann var ráðinn prófessor við viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands árið 2002 og kennir þar bæði í grunn- og framhaldsnámi, einkum þjóðhagfræði og vinnumarkaðshagfræði. Gylfi er skorarformaður í hagfræðiskor og varadeildarforseti við viðskipta- og hagfræðildeild. Auk þess gegnir hann stöðu gestaprófessors við Birkbeck College, University of London þar sem hann starfaði um árabil áður en hann hóf störf við Háskóla Íslands.
Mest lesið Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Sjá meira