Viðskipti innlent

Hagvöxtur misjafn eftir landshlutum

Hagvöxtur var mjög misjafn eftir landshlutum, á árunum 2000 til 2006, samkvæmt nýlegri áætlun Byggðastofnunar og Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands.

Hagvöxtur á Norðurlandi var neikvæður á þessum tíma, bæði á Norðurlandi eystra og hinu vestra. Hagvöxtur var langmestur á Austurlandi og skýrist það eingöngu af framkvæmdum við Kárahnjúka og í Reyðarfirði.

Á sama tíma var hagvöxtur á höfuðborgarsvæðinu tæplega 40 prósent. Hann var dálítið misjafn eftir árum, um eitt prósent árið 2002 en varð mestur, á þessu tímabili, árið 2004. Var þá tíu prósent.

Minnstur hagvöxtur á tímabilinu var á Suðurnesjum árið 2003. Þá varð tíu prósenta samdráttur.

Hagvöxtur á Suðurlandi, Suðurnesjum, Vesturlandi, Vestfjörðum og á Norðurlandi var yfirleitt neikvæður árin 2001-2003. Á sama tíma var hagvöxtur á landinu öllu, þrjú, núll og fjögur prósent.

Hagvöxtur á landinu var sjö prósent árin 2004 og 2005. Hann var sex prósent árið 2006 og lítillega innan við fimm prósent árið 2007 og rétt neðan við núllið í fyrra. Samkvæmt spá fjármálaráðuneytisins verður næstum tíu prósenta samdráttur í ár og jafnvægi á næsta ári.- ikh








Fleiri fréttir

Sjá meira


×