Innlent

Þórður sinnir sérverkefnum

Þórður ásgeirsson
Þórður ásgeirsson

Embætti fiskistofustjóra hefur verið auglýst laust til umsóknar frá 1. september. Skipunartími er fimm ár.

Þórður Ásgeirsson hefur gegnt embættinu frá stofnun Fiskistofu árið 1992. Kvaðst hann í samtali við Fréttablaðið verða áfram í sérstökum verkefnum fyrir stofnunina í hálfu starfi. Krafist er háskólamenntunar umsækjenda og er æskilegt að þeir hafi staðgóða þekkingu á fiskveiðistjórnun og stjórnsýslureglum og hafi reynslu af stjórnsýslu. - bþs




Fleiri fréttir

Sjá meira


×