Verðbólguhjöðnun hægari en gert var ráð fyrir Jón Hákon Halldórsson skrifar 20. ágúst 2009 11:13 Greiningadeild Íslandsbanka gerir ráð fyrir hægari verðbólgu en áður var talið. Mynd/ Anton. „
Þótt enn séu horfur á allhraðri hjöðnun verðbólgu hefur dregið nokkuð úr bjartsýni okkar á að hún verði orðin í takti við nágrannalönd Íslands þegar nýtt ár heilsar," segir í Morgunkorni Íslandsbanka. Greiningadeild Íslandsbanka segir að þó séu í raun aðeins tveir þættir sem þrýsti vísitölu neysluverðs upp á við þessa dagana; gengisfall krónu og hækkun neysluskatta. Gengi krónu sé nú ríflega 8% lægra en í upphafi árs. Veiking krónunnar, og ekki síður vaxandi vantrú á að styrking hennar sé í vændum á næstunni, hafi orðið til þess að hækka verð innfluttra vara allhratt undanfarna mánuði og sjái ekki fyllilega fyrir endann á þeirri verðhækkun enn. Greiningadeild Íslandsbanka gerir ráð fyrir að neysluverðsvísitalan hækki um 1,4% á þriðja ársfjórðungi, og séu áhrif krónu þar langstærst. Spá Greiningadeildarinnar gerir ráð fyrir að verðbólgan mælist 5,5% í upphafi næsta árs en að neysluverðsvísitalan sé líklegri til að lækka en hækka á komandi ári. Byggir spáin á þeim forsendum að krónan rétti hægt og rólega úr kútnum á næsta ári, íbúðaverð haldi áfram að lækka og hækkun launa á vinnumarkaði verði mjög hófleg. Í spánni er ekki gert ráð fyrir frekari hækkun neysluskatta vegna þess að ógerningur er að festa hendur á stærðargráðu eða tímasetningu slíkrar hækkunar að mati Greiningadeildarinnar. Þó hljóti líkur á hækkun neysluskatta að teljast mjög miklar, til að mynda um næstu áramót, enda margar tillögur um slíka hækkun að finna í nýlegri áætlun fjármálaráðuneytis um jöfnuð í ríkisfjármálum.
Mest lesið Svara kallinu og hafa opið til tíu á kvöldin Neytendur Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst Viðskipti innlent Gift svo góðum grillara og sér því meira um innivinnuna Atvinnulíf Vonar að þrjár konur hjá Icelandair hafi fengið hrós Neytendur María nýr stjórnarformaður SVEIT Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Nathan Viðskipti innlent Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Viðskipti innlent Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Viðskipti innlent Fleiri fréttir Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst María nýr stjórnarformaður SVEIT Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Ráðinn forstjóri Nathan Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Úr Símanum í rörin Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Telur forstjórann reyna að fara fram hjá stéttarfélaginu „Ekki einhverjir krúttlegir krakkar að leika sér í tölvum“ Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Icelandair grunar flugmenn um græsku Hæstiréttur tekur mál Kvikutoppanna ekki fyrir Bakkavararbróðir kaupir í Kviku fyrir milljarða Gengi Alvotech tekur kipp Alvotech stóðst úttekt FDA Sláandi hve mikið skattarnir hafi hækkað Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Sjá meira