Mosaic Fashions komið í greiðslustöðvun 2. mars 2009 17:12
Búið er að setja Mosaic Fashions í greiðslustöðvun og hefur stærstur hluti félagsins verið seldur Kaupþingi og stjórnendum Mosaic. Mosiac verslanirnar ásamt Warehouse, Oasis, Coast, Karen Millen og Anoushka G verða núna starfræktar af nýju eignarhaldsfélagi sem kallast Aurora Fashions, eftir því sem fram kemur á vef Retail Week. Þessi sala tryggir framtíð þessara vörumerkja og tryggir að framhald verður á fjármögnun þeirra. Þessi endurskipulagning þýðir að 8700 manns geta haldið störfum hjá Aurora Fashions," segir Phil Bowers, skiptastjóri á vegum Deloitte. Skiptastjórar munu halda áfram viðskiptum með Principles og Shoe Studio, en viðræður eru í gangi um kaupendur að báðum þessum verslunum. „Við erum mjög ánægð með að framtíð bestu tískuvöruverslana á Bretlandi hafi verið tryggð og að við getum áfram byggt á því frábæra orðspori sem vörumerki okkar hafa á meðal viðskiptavina okkar," segir Dereck Lovelock, framkvæmdastjóri Aurora. „Við hlökkum mjög mikið til þess að eiga samstarf við Kaupþing og einnig að binda endi á ákveðinn kafla í sögunni sem hefur verið okkur mjög erfiður," bætti Lovelock við. Mosaic Fashions var að 49% hluta í eigu Baugs, en Kaupþing mun eignast 90% hlut í félaginu og stjórnendur Mosaic munu eignast um 5-10% samkvæmt frétt Sunday Times sem birtist í morgun. Skilanefnd Kaupþings vonast til þess að með breytingum á rekstrarfyrirkomulaginu verði hægt að hámarka verðmæti félagsins til langtíma litið í stað þess að það verði selt á brunaútsölu.
Mest lesið Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Sjá meira