Hriktir í stoðum Gaums 6. febrúar 2009 19:57
Það hriktir í stoðum Gaums sem er í eigu Jóns Ásgeirs og fjölskyldu. Gaumur rekur meðal annars Hagkaup og Bónus og fer með stærsta eignarhlutann í Baugi. Með greiðslustöðvun BG Holding og yfirvofandi gjaldþroti Stoða má ætla að rúmlega 80 prósent af eignum félagsins hafi þurrkast út. Hagar, sem er í 100% eigu Gaums, rekur 22 verslunarkeðjur á Íslandi, m.a. Bónus, Hagkaup, 10/11, Debenhams, Topshop og Zöru. Starfsmenn Haga og dótturfélaga eru 2500 talsins. Tap á rekstri félagsins á sex mánaða tímabili í fyrra var 1,4 milljarðar. Gaumur á einnig um 60% hlut í Styrk Invest. Styrkur eignaðist kjölfestuhlut í FL group í apríl 2008. FL group var síðar breytt í Stoðir. Í kjölfar þjóðnýtingar Glitnis fóru Stoðir í greiðslustöðvun sem hefur verið framlengd tvisvar og rennur út þann 6. apríl næstkomandi. Miðað við stöðu félagsins er allt útlit fyrir að hlutabréff félagsins séu verðlaus. Stærsta eign Gaums er 75% hlutur í Baugi Group sem er með þeim stærstu á sviði smávöruverslunar í Evrópu. Allar eignir Baugs eru erlendis, flestarí Bretlandi en einnig á Norðurlöndunum. Samkvæmt grein sem Jón Ásgeir skrifaði fyrir jól voru skuldir Baugs við íslenskar fjármálastofnanir um mitt síðasta ár 160 milljarðar króna. Gera má ráð fyrir að sú tala sé mun hærri í dag, sé tekið tillit til veikingu krónunnar. Dótturfélag Baugs, BG Holding, sem nú hefur verið sett í greiðslustöðvun í Bretlandi rekur m.a. Hamleys, House of Fraser, Magasin, Illum og Iceland, sem hefur verið talin ein verðmætasta eign félagsins. Stoðir Invest sem er í 90% eigu Gaums eiga m.a. hlut í 365, Teymi og Latabæ. Bæði 365 og Teymi voru afskráð í Kauphöllinni á síðasta ári og hefur rekstur þessara félaga verið erfiður. Þá áttu Stoðir Invest einnig 15% hlut í Nyhedsavisen sem nú er gjaldþrota. Með greiðslustöðvun BG Holding og yfirvofandi gjaldþroti Stoða má heita að rúmlega 80% af eignum Gaums hafi þurrkast út. Samkvæmt ársreikningi Gaums fyrir árið 2007 skuldaði félagið 16 milljarða en átti eignir upp á 61 milljarð. Síðan þá hefur það eignast hlutinn í Stoðum og tapað honum aftur, eignast Stoðir Invest og Haga. Skuldir félagsins hafa aukist gríðarlega með þessari stökkun á eignasafninu en eignir rýrnað eins og áður segir.
Mest lesið Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Sjá meira