Halvorsen: Okkur er mikið í mun að hjálpa Íslandi 13. október 2009 10:06
Kristin Halvorsen fjármálaráðherra Noregs ræddi málefni Íslands m.a. í fjárlagaræðu sinni á norska Stórþinginu. Halvorsen segir að Norðmönnum sé mikið í mun að hjálpa Íslandi í þeim þrengingum sem íslenska þjóðin gengur í gegnum. „Við höfum einnig gefið fyrirheit um tvíhliða lán til Íslands og Lettlands, nágrannaríkja okkar sem hafa orðið sérlega illa úti í efnhagskreppunni," segir Halvorsen. „Okkur er mikið í mun að hjálpa Íslandi í þeim erfiðum aðstæðum sem landið er í. Noregur hafði forgöngu snemma um verulegan stuðning við Ísland í gegnum norrænt samstarf." Halvorsen ræddi síðan um lánaupphæðina en norska lánið er 480 milljónir evra í sameiginlegum norrænu lánum upp á 1,8 milljarða evra. „Við leggjum mikla áherslu á að Norðurlöndin styðji Ísland með þessum hætti. Bæði Noregi og Íslandi er akkur í að norrænt samstarf styrkist og að stuðningurinn við Íslendinga fari fram í krafti alþjóðlegs samstarfs," segir Halvorsen. Í ræðunni gat Halvorsen þess einnig að Jens Stoltenberg forsætisráðherra Noregs hafi í síðustu viku sent bréf til Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra þar sem hann staðfesti norska lánið innan hins norræna ramma. „Mér er eins og forsætisráðherranum umhugað um að önnur Norðurlönd styðji viðleitni íslenskra stjórnvalda til þess að endurreisa efnahagslíf sitt og stuðla að því að koma á eðlilegum tengslum við umheiminn. Við munum halda áfram að fylgjast náið með þróuninni á Íslandi," segir Halvorsen.
Mest lesið Þúsund manna hátíðir ekkert mál en ein lítil kónguló skelfileg! Atvinnulíf Ölgerðin hækkar verðin Neytendur Segir sjaldan hafa verið auðveldara að vera fyrsti kaupandi Neytendur Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Viðskipti innlent Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Viðskipti innlent Kynntust í janúar og kynna nýja lausn fyrir matvælaframleiðendur Atvinnulíf Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Viðskipti innlent Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Viðskipti innlent Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Sjá meira