Viðskipti innlent

Þurfa að greiða Saga Capital tæpar 300 milljónir króna

Dögg Pálsdóttir hæstaréttarlögmaður og Páll Ágúst sonur hennar áttu Insolidum.
Dögg Pálsdóttir hæstaréttarlögmaður og Páll Ágúst sonur hennar áttu Insolidum.
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag Insolidum, þrotabú í eigu Daggar Pálsdóttur, lögmanns og varaþingmanns Sjálfstæðisflokksins, og Páls Ágústs Ólafssonar, sonar hennar, til að greiða Saga Capital Fjárfestingarbanka tæpar 300 milljónir króna auk dráttarvaxta. Þá eru Dögg og Páll Ágúst jafnframt dæmd til að greiða 2,8 milljónir í málskostnað.

Málið snýst um stofnfjárbréf sem Insolidum keypti í SPRON í gegnum Saga Capital í júlí 2007. Bréfin keypti félagið fyrir tæpar 600 milljónir og Saga Capital fjármagnaði hluta af því.

Eftir að gengi bréfanna í SPRON féll mikið fyrstu mánuðina eftir að félagið var sett á hlutabréfamarkað fór Saga Capital fram á svokallað veðkall, það er aukið tryggingafé vegna bréfanna. Í kjölfarið af því rifti Insolidum samningum við bankann á þeim forsendum að reglur hefðu verið brotnar í viðskiptum með bréfin.

Í kjölfarið fór Saga Capital fram á að fá öll hlutabréf í fyrirtækinu og yrði þar með réttmætur eigandi fyrirtækisins. Það mál fór fyrir Héraðsdóm og síðar Hæstarétt sem féllst ekki á þessa kröfu fjárfestingarbankans meðal annars vegna þess að Saga Capital taldist ekki hafa gert viðhlítandi grein fyrir því hvaða heimild gæti staðið til þess að bankanum yrðu fengin umráð félagsins.

Málið fór aftur fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur og var dæmt í því í morgun.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×