Viðskipti innlent

Gengið frá kaupunum á Ferðaskrifstofu Íslands

Iceland Express hefur gengið frá kaupum á öllu hlutafé í Ferðaskrifstofu Íslands, sem inniheldur Úrval-Útsýn, Plúsferðir og Sumarferðir. Hjá félögunum starfa rúmlega 70 manns.

Ferðaskrifstofan hefur glímt við rekstrarerfiðleika undanfarna mánuði. Með kaupunum er tryggt að þeir fjölmörgu farþegar sem keypt höfðu ferðir hjá félaginu, munu ekki verða strandaglópar.

Iceland Express mun koma með nýtt fé inn í reksturinn og tekur við öllum skuldbindingum þess. Samningur þess efnis var undirritaður í gær. Þorsteinn Guðjónsson verður áfram forstjóri félagsins.

Matthías Imsland: forstjóri Iceland Express segir að þeir séu ánægðir með þessi kaup.

„Vissulega er útlit fyrir töluverðan samdrátt í greininni, en við ætlum að vera á þessum markaði til langframa og við lítum á þetta sem langtímafjárfestingu," segir Matthías.



Þorsteinn Guðjónsson forstjóri Ferðaskrifstofu Íslands segir að það sé mikið fagnaðarefni fyrir stjórnendur og starfsmenn Ferðaskrifstofu Íslands, að tekist hafi að tryggja áframhaldandi rekstur félagsins.

„Við búum yfir mjög fórnfúsu og reynslumiklu starfsfólki, sem hefur sýnt mikið æðruleysi í því mótlæti sem gengissveiflur og bankakreppan hafa leitt yfir okkur. Iceland Express er öflugur bakhjarl og ég trúi að saman eigi þessi félög eftir að dafna," segir Þorsteinn










Fleiri fréttir

Sjá meira


×