Viðskipti innlent

Líftryggingarfélög skiluðu 1,5 milljarða hagnaði í fyrra

Hagnaður innlendu líftryggingafélaganna eftir skatt var tæplega 1,5 milljarður kr. árið 2008 samanborið við rúmlega 1,3 milljarða kr. árið 2007.

Þetta kemur fram á vefsíðu Fjármálaeftirlitsins. Þar segir að örlítið minni hagnaður var af líftryggingastarfsemi árið 2008 en árið áður, 1,3 milljarðar kr. samanborið við 1,4 milljarða kr.

Tekjur af fjármálastarfsemi tífölduðust hins vegar á milli ára, voru rúmlega 300 milljónir kr., samanborið við 30 milljónir kr. árið áður. Mikil breyting varð á eignasamsetningu félaganna á árinu, eign í verðbréfum með breytilegum tekjum (hlutabréfum og verðbréfasjóðum) lækkaði um 51% og eign í skuldabréfum lækkaði um 33%.

Eignir í sjóðum og bankainnstæðum jukust hins vegar úr 500 miljónum kr. í 2,7 milljarða kr. sem skýrir auknar tekjur af fjármálastarfsemi.

Eignir líftryggingafélaganna lækkuðu um 11,4% á milli ára. Þær voru í árslok 2008 um 12,2 milljarðar kr., samanborið við 13,8 milljarða kr. í árslok 2007.

Eigið fé líftryggingafélaganna nam 4,7 milljarði kr. og lækkaði á árinu um 7,5%. Fjárfestingar vegna söfnunarlíftrygginga (líftrygginga með fjárfestingaráhættu líftryggingartaka) drógust saman um 21,3% á árinu, að öllum líkindum bæði vegna rýrnunar eigna og innlausnar samninga.

Öll líftryggingafélögin eru dótturfélög annarra fyrirtækja. Tvö eru dótturfélög skaðatryggingafélaga, tvö eru dótturfélög banka og eitt er dótturfélag eignarhaldsfélags.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×