Yfirtakan á Sparisjóðabankanum hefur engin áhrif á Byr 23. mars 2009 10:13
Yfirtaka FME á Sparisjóðabankanum mun ekki hafa áhrif á rekstur Byrs þar sem eign Byrs í Sparisjóðabankanum hafði þegar verið færð niður í uppgjöri Byrs fyrir árið 2008. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Byr þar sem ennfremur segir að sparisjóðurinn hafi ekki átt hlut í SPRON og því hefur yfirtaka hans ekki fjárhagsleg áhrif á Byr. „Hugur starfsmanna Byrs er hjá starfsfólki SPRON og Sparisjóðabankans enda hafa samskiptin verið góð og ánægjuleg í gegnum tíðina. Starfsfólk Byrs vill koma á framfæri hlýjum kveðjum til starfsmanna fyrirtækjanna," segir einnig. Yfirtakan á rekstri Sparisjóðabankans mun ekki hafa önnur áhrif á þjónustu Byrs en þá, að erlend greiðslumiðlun, færist til Seðlabankans og munu viðskiptavinir Byrs ekki verða fyrir neinum áhrifum af þessum aðgerðum. „Öll dagleg uppgjör og innlend greiðslumiðlun hefur nú um nokkurt skeið farið í gegnum Seðlabanka Íslands án milligöngu Sparisjóðabankans og verður því engin breyting þar á við þessa aðgerð," segir ennfremur. Að lokum áréttar Byr að þrátt fyrir erfitt rekstrarár árið 2008 er lausafjárstaða sjóðsins góð og eiginfjárhlutfall innan tilskilinna marka, eða 8,3%. „Innlán jukust á árinu um 106% samfara fjölgun viðskiptavina og gerir rekstraráætlun Byrs 2009 ráð fyrir jákvæðri afkomu."
Mest lesið Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Sjá meira