Viðskipti innlent

Landsbankinn tryggir rekstur deCODE með 1,4 milljarði kr.

Landsbankinn mun tryggja rekstur deCODE til skamms tíma með kaupum á skuldabréfum í félaginu að upphæð 11 milljónir dollara eða um 1,4 milljarð kr..

Samkvæmt tilkynningu um málið á vefsíðu Nasdaq kauphallarinnar felur samkomulag Landsbankans og deCODE í sér að félagið hefur möguleika á því að kaupa skuldabréfin aftur af bankanum fyrir 31. desember í ár.

Landsbankinn á móti hefur möguleika á að selja bréfin til deCODE þegar og ef deCODE selur frá sér eignir fyrir 31. desember. Ekki kemur fram um hvað eignir sé að ræða.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×