Vaxtagjöld til útlanda námu 52 milljörðum frá áramótum 9. september 2009 08:59
Í heild nema reiknuð vaxtagjöld til útlanda í kringum 52 milljörðum kr. á fyrri helmingi ársins sé leiðrétt fyrir gömlu bönkunum samkvæmt mati Seðlabankans. Þetta kemur fram í Markaðspunktum greiningar Nýja Kaupþings. Greiningin hefur áætlað gróflega hvernig vaxtagreiðslurnar skiptast en helsta stærðin eru erlendir aðilar því uppistaðan í vaxtagjöldum til útlanda á fyrri helmingi ársins er tengd stöðum erlendra fjárfesta í íslenskum krónueignum. Þetta má rekja til þess að vaxtadagar ríkisbréfa féllu að stórum hluta til á fyrri helmingi ársins. Vaxtagjöldin námu því um 33 milljörðum kr. á fyrri helmingi ársins. Til samanburðar reiknast vaxtagreiðslur upp á 12 milljarða kr. til erlendra aðila á síðari helmingi ársins. Reiknuð vaxtagjöld Orkuveitu Reykjavíkur námu 2,7 milljörðum kr. á fyrri helmingi ársins samkvæmt rekstarreikningi, þar af eru 92,3% í erlendum gjaldmiðli en um 20% tekna OR eru í erlendum gjaldeyri. Landsvirkjun hefur greitt í kringum 5 milljarða kr. í vaxtagreiðslur á fyrri helmingi ársins en um 88% af lánum félagsins eru í erlendri mynt. Þó verður að hafa í huga að tekjur eru að langmestu leyti í erlendri mynt og kalla því ekki á kaup á gjaldeyri. Erlendar skuldir stærstu sveitarfélaganna eru um 35 milljarðar kr. sem að hluta eru skuldir við gömlu bankana. Áætla má að heildar vaxtagreiðslur sveitarfélaga vegna erlendra lána séu um 3 milljarða kr. á ári en þá á eftir að leiðrétta fyrir vaxtagreiðslum lána sem falla undir gömlu bankana. Vaxtagreiðslur af erlendum lánum ríkisins námu um 3 milljörðum kr. á fyrri helmingi ársins. Ætla má að vaxtagreiðslur af erlendum lánum á seinni helmingi ársins verði í kringum 9 milljarðar kr. Greiningin segir að hinsvegar verði að setja verulega fyrirvara um mögulegar vaxtagreiðslur ríkisins til útlanda á næstu misserum - bæði hvað varðar núverandi lán (og lánalínur) og mögulegar lántökur eða framlengingu á núverandi lánum. Greiningin bendir á að ekki liggi fyrir hvort eða hversu mikið hefur verið nýtt af láni AGS til að styðja við gengi krónunnar - þ.e. við greiðum vexti af þeim hluta lánsins sem er nýttur Lánakjör, skilmálar og nákvæmar fjárhæðir í lánum til styrkingar gjaldeyrisforðans liggja ekki endanlega fyrir og að ekki er tekið mið af 40 milljarða kr. áföllnum vöxtum vegna Icesave.
Mest lesið Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Viðskipti innlent Umsóknum synjað og kurr í greininni Viðskipti innlent Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Viðskipti innlent Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Viðskipti innlent Jóhann Ingi til Securitas Viðskipti innlent Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Viðskipti innlent Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Viðskipti innlent Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Viðskipti erlent Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Viðskipti innlent Fleiri fréttir Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Þrettán prósent hækkun á bensíni að mestu vegna Íransstríðs Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Hvað á að gera við fermingarpeningana? Farþegum fjölgaði á milli ára í mars Tækifæri í vátryggingakerfi til að draga úr verðbólgu „Vefveiðar eru ekki tæknivandamál, þær eru mannlegt vandamál“ Sjá meira