Fjöldi heimila með neikvæða eiginfjárstöðu fjórfaldast 18. júní 2009 12:40
Í árslok 2007 voru um 7.500 heimili með um 3,1 milljónir kr. að meðaltali í neikvæðu eigin fé. Nú er áætlað að þau verði orðin um 28.500 talsins með um 6,4 milljónir kr. að meðaltali í neikvæðu eigin fé í árslok 2009. Þetta er fjórfjöldun á fjölda heimila og tvöföldun á upphæðinni. Fjallað er um málið í nýju vefriti fjármálaráðuneytisins. Þar segir að þessi þróun segi þó ekki til um greiðslubyrði heimilanna, en benda má á upplýsingar á heimasíðu Seðlabankans hvað það atriði varðar. Í árslok 2007 nam íbúðareign samkvæmt fasteignamati 2.432 milljarðar kr. en íbúðaskuld 862 milljarðar kr. Um 100.000 heimili voru skráð fyrir íbúð. Þar af skulduðu 27.000 heimili ekkert í íbúðum sínum, en 17.500 fjölskyldur skulduðu sem nam 80% eða meira. Ef hinir skuldlausu eru undanskildir áttu 73 þúsund fjölskyldur húsnæði metið á 1.830 milljarða kr. en skuldir að upphæð 861 milljarða kr. Eiginfjárhlutfall þessara 73 þúsund fjölskyldna var 53% í árslok 2007 og áætlað um 40% í árslok 2008, og lauslega er áætlað að það verði komið í 27% í árslok 2009. Þróunin hefur haft mikil áhrif á fjárhagslega stöðu heimilanna, en mest hjá þeim sem mikið skulda. Til viðbótar við rýrnandi kaupmátt og aukið atvinnuleysi hefur aukning skulda og minnkandi íbúðaauður áhrif til að draga úr vilja heimilanna eða getu til að taka lán. Því hefur þrengt að neyslugetu margra fjölskyldna og gert þær viðkvæmar fyrir frekari sveiflum. Aðgerðir stjórnvalda til að halda greiðslubyrði íbúðalána í skefjum eru ígildi lánafyrirgreiðslu og hjálpa mörgum yfir erfiðasta hjallann. Í heild er áætlað að meðaleign íslenskra fjölskyldna í íbúðarhúsnæði lækki úr 15,7 milljónum kr. í 9,7 milljónir kr. á tveimur árum sem er 38% lækkun að nafnverði og 50% að raungildi. Nettó eign jókst þrátt fyrir aukna skuldsetningu þegar húsnæðisverð hækkaði, en nú stuðlar lækkun íbúðaverðs og hækkun skulda að lækkun eiginfjárhlutfallsins. Reynslan bendir til að fasteignamarkaðurinn og skuldir heimila nái jafnvægi þegar tekjur taka að aukast á ný. Því má telja líklegt að íbúðaverð og eiginfjárhlutfall fari hækkandi eftir nokkur ár.
Mest lesið „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Viðskipti innlent Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Neytendur Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Viðskipti innlent Ósýnilegir múrar: „Ekki nóg að segja bara að fólk eigi að vinna saman“ Atvinnulíf Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Viðskipti innlent Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Sjá meira