Fasteignakaupendur mjög jákvæðir gagnvart ÍLS 13. febrúar 2009 15:55
Í viðhorfskönnun meðal fasteignakaupenda sem Capacent Gallup gerði nýlega kemur fram að 94,1% þeirra eru jákvæðir gagnvart Íbúðalánasjóði. Í tilkynningu um málið segir að jákvæðni gagnvart sjóðnum meðal fasteignakaupenda hefur aldrei verið meiri frá því að slíkar mælingar hófust. 95% fasteignakaupenda telja nú að Íbúðalánasjóður eigi að starfa áfram í óbreyttri mynd, en rúm 81 prósent voru þeirrar skoðunar í ársbyrjun 2006. Rösklega 82 af hundraði sögðust hlynntir því að ríkið styddi við húsnæðiskaup eignalítilla og tekjulágra einstaklinga. Spurt var í könnuninni hve hátt hlutfall af kaupverði verðtryggð húsnæðislán ættu að vera að hámarki. Flestir, eða 46%, töldu að hlutfallið ætti að vera 76-85%. Þá var spurt um hámarksfjárhæð húsnæðislána og vildi þriðjungur þeirra sem svöruðu að hún væri 16-20 milljónir króna, en tæpur þriðjungur taldi að lánsfjárhæðin ætti að vera 26 milljónir króna eða meira. Langflestir, 78,8%, tóku lán til íbúðakaupanna hjá Íbúðalánasjóði, en í sambærilegri könnun um mitt ár 2007 sögðust 46,3% hafa tekið lán hjá sjóðnum. Tveir þriðju þeirra sem áttu tvær fasteignir náðu að selja aðra þeirra, en þriðjungi tókst það ekki. 45,6% töldu mjög litlar líkur á að þeim tækist að selja aðra fasteignina á næstu 6 mánuðum og 25,3% töldu frekar litlar líkur á því. Samtals töldu því 70,9% litlar líkur á önnur fasteignin seldist á næstu mánuðum. 23,5% þeirra sem tóku ný lán við fjármögnun á húsnæði töldu líklegt að þeir lentu í greiðsluerfiðleikum vegna afborgana af nýja húsnæðinu. Þegar spurt var hvaða úrræði hentaði best þeim sem lenda í greiðsluerfiðleikum með fasteignalán sögðu 43,9 % að það væri afnám verðtryggingar á lánum. 31,7% töldu frystingu afborgana um ákveðinn tíma besta úrræðið. Spurt var um viðhorf til þess að húsnæðislán sem ekki eru hjá Íbúðalánasjóði yrðu flutt þangað. 68,8% sögðust ánægðir með slíka ráðstöfun. Könnunin var gerð dagana 25. nóvember til 15. desember 2008 meðal 1200 einstaklinga sem keyptu fasteign á tímabilinu júní til október 2008. Svarhlutfall var 48,6%.
Mest lesið Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Sjá meira