Almenningur væntir 10% verðbólgu eftir ár 30. október 2009 11:22
Almenningur væntir þess að verðbólgan verði í 10% eftir tólf mánuði samkvæmt könnun sem Seðlabankinn lét gera í síðasta mánuði en niðurstöðurnar birti bankinn í gær. Þegar könnunin var gerð var verðbólgan 10,8% en nú er hún 9,7%. Greining Íslandsbanka fjallar um málið í Morgunkorni sínu. Þar segir að almenningur væntir þess því að verðbólgan verði svipuð eftir ár og hún er núna. Öðru gegnir um stjórnendur fyrirtækja en samkvæmt sömu könnun vænta þeir þess að verðbólgan verði komin í 4% eftir tólf mánuði og hafi því hjaðnað allnokkuð frá því sem hún er nú. Litið tvö ár fram í tímann þá vænta heimilin þess að verðbólgan verði þá komin í 6% en fyrirtækjastjórnendur að hún verði 5%. Verðbólguvæntingar eru því miklar og langt frá því að menn trúi á 2,5% verðbólgumarkmið Seðlabankans. Því markmiði hefur reyndar verið vikið til hliðar tímabundið og gengisstöðugleikamarkmið tekið upp í þess stað. Fyrir ári spáðu stjórnendur fyrirtækja þess að verðbólgan yrði 10% í september í ár og höfðu þeir því rétt fyrir sér. Almenningur vænti þess hins vegar fyrir ári að verðbólgan í dag væri 14% og voru því helst til of svartsýnir á þeim tíma, en í september í fyrra var verðbólgan 14%. Talsverður munur er oft á verðbólguvæntingum almennings annars vegar og stjórnenda fyrirtækja hins vegar. Virðist sem verðbólguvæntingar almennings mótist mest af þeirri verðbólgu sem er á þeim tíma sem könnunin er gerð en verðbólguvæntingar stjórnenda fyrirtækja mótast meira af verðbólguspám. Verðbólguvæntingar fyrirtækjastjórnenda er nú nálægt verðbólguálagi ríkisbréfa gagnvart íbúðabréfum en það er nálgun á verðbólguvæntingar fjárfesta á skuldabréfamarkaði. Væntingar almennings um verðbólgu eftir tólf mánuði eru óbreyttar frá því að könnun á þeim var gerð síðast í júní á þessu ári. Væntingar fyrirtækjastjórnenda hafa hins vegar aukist nokkuð en í maí á þessu ári, þegar könnun var síðast gerð á væntingum þeirra, bjuggust þeir við því að verðbólgan yrði engin eða 0% eftir tólf mánuði. Verðbólgan hefur líka verið að hjaðna hægar er spár gerðu ráð fyrir. Þess má geta að verðbólgan í maí var 11,6% og 12,2% í júní.
Mest lesið Ölgerðin hækkar verðin Neytendur Segir sjaldan hafa verið auðveldara að vera fyrsti kaupandi Neytendur Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Viðskipti innlent Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Viðskipti innlent Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Viðskipti innlent Kynntust í janúar og kynna nýja lausn fyrir matvælaframleiðendur Atvinnulíf Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Viðskipti innlent Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Viðskipti innlent Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Sjá meira